kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því í upphafi ræðu minnar að þakka þeim sem hér hafa talað fyrir fyrirtaksræður, góðar og innihaldsríkar og efnismiklar, og ég hlakka til umræðunnar hér áfram í dag, enda fjölmargir á mælendaskrá í þessu stóra og mikla máli sem við þekkjum orðið ágætlega hér á þinginu, enda hefur margsinnis verið reynt að koma því hér í gegnum þingið og hér stöndum við í dag í einni atrennunni að því.
Mig langar aðeins í upphafi ræðu minnar að segja að í eðli mínu er ég ekkert mótfallinn þeirri leið sem er verið að fara. Ég held að við verðum einhvern veginn að finna leið sem tekur á þessari breyttu sviðsmynd sem er að teiknast upp í heiminum, við erum að færa okkur úr jarðefnaeldsneyti yfir í rafmagnsbíla. Þar af leiðandi þurfum við að fá inn tekjur af þessum bílum sem við getum ekki náð í gegnum skatta á eldsneyti. Ég held að allir séu sammála um það og sá sem hér stendur er það. Hins vegar snýst þetta alltaf um útfærsluna. Hvernig útfærum við svo þessar hugmyndir? Hvernig viljum við sjá þetta gert? Ég verð að segja að þó að það sé margt í þessu frumvarpi sem hér er lagt fram sem er gott og skynsamlegt þá er annað í því sem er til þess fallið að sá sem hér stendur getur ekki kvittað upp á það og mun ekki gera. Það er svo sem ekkert óeðlilegt við það en það er nú staðan. Það er ekki þar með sagt — og ég ætla hér að forverja mig þeirri umræðu — að ég sé einhvern veginn á móti því að breyta um kerfi. Það er ég ekki, ég er bara á móti því hvernig við gerum þetta, og ég hef komið með þær gagnrýnisraddir í efnahags- og viðskiptanefnd, ég hef talað fyrir því hér í ræðustól þingsins, svo það er ekkert nýtt undir sólinni þar. En ég skil að með breyttu landslagi og breyttri tækni þá verðum við að bregðast við því og ég ætla að fara yfir það í ræðu minni nú á eftir.
Mig langar í upphafi aðeins að ræða um tekjuhliðina á þessu frumvarpi sem á að skila ríkinu einhverjum 3,3 milljörðum í tekjur sem eiga að renna til uppbyggingar vegasamgangna sem er gott og blessað. Við vorum með þetta sama mál í umræðu hér á síðasta þingi, hjá síðustu ríkisstjórn, þar sem þetta fór ekki í gegn, m.a. vegna þess að sá sem hér stendur var ekki alveg sannfærður um að þetta væri rétt útfærsla en þar var komið til móts við það gat sem myndaðist í fjárlögunum eftir að frumvarpið var dregið til baka og fjárlaganefnd fór í þá vinnu að hækka kolefnisgjöld sem voru hækkuð um 4,5 milljarða, ef ég man rétt — horfi nú á fyrrverandi formann fjárlaganefndar sem sat við hliðina á mér þegar við vorum í þessu púsluspili síðast — og nú eru að koma 3,5. Þetta eru nú orðnir töluverðir fjármunir því ef ég man eftir frumvarpinu og kynningunni á frumvarpinu hér í upphafi þá voru einhver orð um að það ætti að vera tekjuhlutlaust, sem það er að sjálfsögðu ekki orðið og ég náði aldrei almennilega utan um hvernig menn ætluðu að gera það að slíku.
En já, við ætlum að fara að setja fjármagn inn í vegakerfið og ég fagna því. Það er gríðarleg þörf á því að fara að styrkja vegasamgöngur úti um allt land. Það eru 43 milljarðar settir inn í fjárfestingarframlög til samgangna á þessu ári samanborið við 36,5 í síðustu fjárlögum og þarna munar um 7,5 milljörðum. Ég held að það sé ágætt að við höfum það í huga í umræðunni að veiðigjöldin, sem voru 7,5 milljarðar, áttu að fara í uppbyggingu vegaframkvæmda á landsbyggðinni. Við erum með 7,5 milljarða sem við ætlum að ná í í aukin vörugjöld sem sömuleiðis hafa verið eyrnamerkt, í umræðunni a.m.k., í vegaframkvæmdir, 3,3 milljarðar í þessu hefur verið talað um að eigi að renna inn í vegaframkvæmdir. Þetta eru um 18,3 milljarðar sem ég er búinn að telja hér upp, en aukningin er 7,5 og þá eru eftir allar krónutöluhækkanir á bifreiðagjöldum sem og tekjur af bensín- og olíugjöldum sem sömuleiðis fara í og eiga að fara í uppbyggingu vegakerfisins. Ég geri mér grein fyrir því, virðulegur forseti, að ekki er lengur hægt að tala um eyrnamerkt fé inn í fjárlög en ég er að vitna í umræðu sem hefur átt sér stað hér í þinginu í þessum málum máli mínu til rökstuðnings.
Ég vil líka benda á það að í samgönguáætlun er talað um 6–7 milljarða vegna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins á næstu fimm árum sem alltaf stóð til að yrði fyrir utan áætlunina og yrði fjármagnaður með sérhætti. Því eru þetta í raun og veru 34 milljarðar sem eru að fara í framkvæmdir og viðhald á landsbyggðinni, sem er afskaplega sambærileg tala og var í síðustu fjárlögum.
Mig langar að ræða hér aðeins áhrifin á landsbyggðina. Ég talaði um það hér í 1. umræðu að ég hefði, og hef, verulegar áhyggjur af því hvaða áhrif þetta frumvarp mun hafa á landsbyggðina. Af hverju hef ég áhyggjur af því, virðulegur forseti? Jú, það er vegna þess að þegar frumvarpið var lagt fram síðast þá fundu menn það út eftir mikla yfirlegu að til þess að vöruflutningar til og frá landsbyggðinni yrðu ekki fyrir hækkunum þá væri eðlilegt að tengivagnarnir myndu greiða 70% af gjaldinu, fast, til þess að það kæmi ekki til kostnaðarauka fyrir fyrirtæki úti á landi sem þurfa að senda vörur frá sér og sömuleiðis verslun og þjónustu og fyrirtæki á landsbyggðinni sem þurfa að kaupa til sín aðföng og vörur. Því miður náðist það ekki í þessari umræðu hér að koma þessu niður í þessa tölu og þetta endar þannig að gert er ráð fyrir 60% árið 2026, sem er vissulega lækkun, 80 og svo 100% árið þar á eftir, sem mun þýða, virðulegur forseti, að aukinn kostnaður færist á fyrirtækin á landsbyggðinni. Ég held að það sé best að orða það þannig: Það er ekki verið að hjálpa landsbyggðinni. Það er ekki verið að hjálpa fyrirtækjum á landsbyggðinni til að styrkja sínar stoðir þótt ég geri mér grein fyrir því, virðulegur forseti, eins og ég og hv. þm. Pawel Bartoszek höfum nokkrum sinnum rætt, að við erum ekki að tala um stórar upphæðir. Engu að síður eru þetta upphæðir og þetta hefur áhrif og það er ekki síður bara prinsippið, afstaðan, að ef upphæðirnar eru ekki það miklar þá hefði verið tiltölulega lítið mál að laga þetta. En það var ekki gert og þetta get ég illa sætt mig við, virðulegur forseti. Þetta eru vond skilaboð til fyrirtækjanna. Við erum hér alla daga að reyna einhvern veginn að gera það meira aðlaðandi og draga fyrirtæki og þjónustuaðila út á land með sína starfsemi og þegar við fáum svo svona frumvarp sem mun leggja auknar kvaðir og aukinn kostnað á fyrirtækin sem þar starfa þá er það ekki að gera okkur það verkefni auðveldara, það er að gera það erfiðara og verður að öllum líkindum til þess að þessu verður velt út í verðlag sem mun þýða að vöruverð mun hækka á landsbyggðinni þegar þetta verður komið að fullu inn og að vörur frá landsbyggðinni munu sömuleiðis hækka þar sem kostnaðinum við þetta verður örugglega velt út í verðlagið.
Núverandi kerfi er að mörgu leyti mjög fínt kerfi, virðulegur forseti, þar sem þú bara borgar þína skatta á dælunni og þar með er uppgjörinu lokið en það hefur verið bent á það, m.a. af þeim sem búa úti á landi, að auðvitað miðað við kerfið í dag, maður þarf ekki annað en að fara og skoða á bílasölunum þegar verið er að gefa upp eyðslu á bílum, þá er verið að gefa upp eyðslu í langtímaakstri og svo innanbæjarakstri og þetta er sitthvor talan vegna þess að bílar eyða minna í langtímaakstri, þ.e. að við sem búum úti á landi og erum að keyra mikið langar vegalengdir á jöfnum hraða eyðum minna eldsneyti. Því er það ódýrara, við komumst lengra á hverjum lítra. Þetta verður með öðrum hætti núna þannig að við erum að fara að borga fyrir hvern kílómetra þannig að þá hagræðingu er að einhverju leyti verið að skerða fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Það má líka hafa það í huga að þungir flutningabílar og tengivagnar greiða að sjálfsögðu meiri kostnað nú þegar vegna aukinnar eyðslu. Vöruflutningabíll eyðir örugglega 50 til 60 lítrum á hundraðið á meðan venjulegur fólksbíll er kannski að eyða fimm eða sex, en ég geri mér líka grein fyrir því að hann slítur vegunum meira en hann er að borga. Hann er að borga virðisaukaskatt og hann er að borga vörugjöld.
Ég hef líka áhyggjur af því, eins og kom svo bersýnilega fram í umræðu inni í nefndinni, að þetta sé of flókið kerfi, útfærslan sé of flókin. Við erum að tala um 300.000 bíla, við erum að tala um 29 gjaldflokka og við erum að fara að setja þetta á 1. janúar. Það er bara eftir örfáa daga, virðulegur forseti. Ég óttast svolítið að innleiðingin geti orðið flókin þó að ég hafi kannski ekki stórkostlegar áhyggjur af því. En það er alveg rétt sem hefur verið bent á hér í umræðunni, og ég veit að hv. þm. Vilhjálmur Árnason hefur verið að benda á þetta varðandi bakreikninga einstaklinga, að auðvitað getur komið til þess, og mun örugglega gera það, að það muni reynast einhverjum erfitt þegar lækkar á dælunni og menn geta keyrt meira og gera sér ekki grein fyrir því að það er búið að breyta kerfinu með þessum hætti og fá svo reikning sem verður kannski erfitt að kljúfa.
Tíminn er bara svo fljótur að líða, virðulegur forseti. Ég er bara rétt kominn af stað en ég ætla að reyna að forgangsraða því aðeins hvað ég ætla að tala um hér í minni fyrstu ræðu. Ég ætla að fara aðeins yfir í bílaleigurnar og eyða síðustu mínútum þessarar ræðu í að fara í bílaleigurnar. Ég veit að það er ekkert nýtt í því sem ég er að fara að segja hér en það er, virðulegur forseti, í raun og veru dónaskapur að bjóða upp á að fara að samþykkja þetta frumvarp einhvern tímann núna eftir miðjan desember og ætlast til að það verði tekið upp 1. janúar fyrir bílaleigur. Það er rosalega bratt, virðulegur forseti. Það hljóta allir að sjá þetta og það hlýtur að vera hægt að gera einhvers konar ákvæði inni í þessum lagabálki, einhvers konar tröppun til þess að gera bílaleigunum þetta aðeins auðveldara. Ég ætla bara að benda á það að í frumvarpinu sjálfu, þar sem við erum að ræða um tengivagnana, er nákvæmlega svona tröppun, 60, 80, 100, þannig að fordæmið er til staðar og fordæmið er til staðar í frumvarpinu sjálfu. Ég bara skora á félaga mína í meiri hlutanum í hv. efnahags- og viðskiptanefnd að skoða þetta á milli umræðna. Það myndi klárlega gera þetta mál betra og það yrði meiri sátt um málið þó að ég geri mér grein fyrir því að hún yrði aldrei algjör; en gerði þetta betra og kæmi þá aðeins til móts við þessar háværu gagnrýnisraddir bílaleiganna um þennan þátt málsins. Það verður erfitt fyrir þær að rukka þennan kostnað sem þær eru þegar búnar að leggja út.
Ég finn til með bílaleigum landsins núna, virðulegur forseti, að þurfa að fara í þessa vinnu á næstu mánuðum. Þetta er líka flækjustigið. Bílaleigurnar eiga eftir að uppfæra sín tölvukerfi. Þetta er kostnaðarsamt og tímafrekt og ég hef efasemdir um að það muni nást. Bílaleigurnar eiga og þurfa að rukka inn gjöldin fyrir ríkissjóð sem er breyting. Það er líka kerfi sem bílaleigurnar þurfa einhvern veginn að finna út úr og samkvæmt þeim umsögnum sem við höfum fengið, og umsagnaraðilum og þeim bílaleigum sem maður hefur átt samskipti við út af þessu máli, þá skilst mér að bílaleigurnar séu að áætla sér 1,5 milljarða í kostnað á næsta ári sem mun hafa verulega íþyngjandi áhrif á rekstur bílaleiganna. Ég vona svo innilega að þetta verði ekki til þess að einhverjar þeirra fari á hausinn. Það er alveg ljóst að bílaleigurnar eru nú þegar farnar að hagræða í sínum rekstri til að koma til móts við þetta. Ég átti samtal þegar ég var norður í Skagafirði um helgina sem leið þar sem það kom til mín maður sem hefur verið að reka útibú bílaleigu Avis á Sauðárkróki. Hann sagði mér að hann væri að fara að loka, það væri búið að tilkynna honum að það ætti að loka Avis á Sauðárkróki vegna þessara breytinga. Í hagræðingarskyni út af þessum breytingum hefði bílaleigan Avis tekið ákvörðun um að loka þarna. Ég veit ekki hvort þetta er á fleiri stöðum en þetta er náttúrlega afleitt og þetta eru enn ein hliðaráhrifin á landsbyggðina, virðulegur forseti. Þetta mun að öllum líkindum hækka leiguverð á bílaleigubílum um 12–17%. Það hefur og mun hafa áhrif á dreifingu ferðamanna. Það hefur áhrif á fjölda leigðra daga á þessum bílaleigubílum. Og hvað þýðir það? Hvað þýðir að öllum líkindum að ferðir þeirra ferðamanna sem eru að leigja þessa bíla munu styttast og mögulega munu þeir leigja þessa bíla í færri daga. Hvað þýðir það fyrir landsbyggðina, virðulegur forseti? Það þýðir að dreifing ferðamanna um landið mun minnka. Menn munu fara styttra út frá höfuðborgarsvæðinu sem mun hafa afleiðingar fyrir ferðaþjónustu á landsbyggðinni.
Virðulegur forseti. Ég er bara rétt að byrja á þessari ræðu minni sem ég var búinn að punkta niður. Ég sé að tími minn er þrotinn í þetta skipti en ég ætla að láta staðar numið hér. Ég óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá svo að ég geti haldið þessari yfirferð minni áfram.