kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans ágætu ræðu. Hann nefnir það í sínum málflutningi að hann sé í rauninni ekki algerlega á móti hugmyndinni en það sé útfærslan sem vefjist fyrir honum og þá kannski saknaði ég þess að það kæmi fram örlítið meira efnislega um hvað það væri sem myndi gera það að verkum að hv. þingmaður gæti fallist á frumvarpið. Það sem ég heyrði hjá honum helst var hann teldi að afslátturinn vegna tengilesta ætti að vera 70% varanlega en ekki 80% í ár, 60% á næsta ári eða sem sagt 60% — þingmaðurinn skilur hvað ég á við. (Gripið fram í.) Já. Eins og það væri greitt, ekki afsláttur heldur upphæð. Segjum að við myndum fallast á það, það myndi náttúrlega þýða aukningu á næsta ári því að þá færi gjaldið úr 60 í 70, svo minnkun árið eftir það og svo varanlega 70. Ég vil hins vegar benda hv. þingmanni á að það er endurskoðunarákvæði í frumvarpinu, það er hugsað til þess að það sé möguleiki til að bregðast við og þá geta hagaðilar komið sínum sjónarmiðum á framfæri, t.d. út af þessum afslætti og öðrum þáttum þegar frá líður. Ég er bara að velta fyrir mér: Strandar málið á þessu? Ef við myndum ná saman um þetta, gætum við þá fleiri verið á græna takkanum?
Annað sem var nefnt var að frumvarpið væri flókið og ég held að það sé erfitt að bregðast við svona almennri athugasemd því margt í flækjustiginu er auðvitað til komið vegna ýmissa sérstakra hagsmuna, t.d. að þyngri bílar greiði meira en léttari o.s.frv. eða að það sé veittur afsláttur til einhverra ákveðinna hópa.
Í þriðja lagi sem varðar gildistökuna þá verð ég að nefna að í frumvarpinu um kílómetragjald sem var samþykkt hér á síðasta þingi og varð að lögum sem eru í gildi, þá hljómaði gildistökuákvæði þess svona: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“ Ekki var fresturinn þá meiri en svo.