kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og ég verð nú að byrja á því að segja að ég hélt ég hefði verið búinn að forverja mig fyrir síðustu spurningunni. En það frumvarp var ekki samþykkt. (Gripið fram í.) Ókei fyrirgefðu. Ég misskildi hv. þingmann, ég biðst afsökunar, virðulegur forseti. Efnislega — ég bara hvet hv. þingmann til þess að hlusta á afganginn af minni ræðu þar sem ég fór aðeins inn á þá þætti og því miður kemst ég ekki í það núna. Það sem ég hef verið að gagnrýna í þessu frumvarpi — eins og ég sagði í upphafi minnar ræðu þá geri ég mér grein fyrir því að við þurfum að breyta þessu kerfi. Það nær ekki utan um það sem það þarf að ná utan um í dag. Spurningin er útfærslan. Klárlega þarf að breyta með tengivagnana og það þarf að koma miklu betur og bara koma til móts við bílaleigurnar, vil ég segja, þannig að þær, og ferðaþjónustan, verði ekki fyrir þessum skakkaföllum sem þær hafa upplýst okkur um að þær muni lenda í verði þetta frumvarp samþykkt eins og það er fram sett núna. Í mínum huga eru þetta efnislega þeir tveir punktar sem ég myndi telja að gætu gert þetta frumvarp töluvert betra.