kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég vil bara árétta það sem kom hérna fram í okkar samskiptum í sal, ég átti við gildistökuákvæðið í frumvarpi um kílómetragjald sem er í gildi, þ.e. lögunum sem gilda um rafmagnsbíla. Það var bara sett á þann dag sem þingið samþykkti þau lög þannig að ekki var nú aðdragandinn mikill þá. Mig langar hins vegar að spyrja — hef ég eina mínútu eða tvær, frú forseti?
(Forseti (HildS): Eina.)
Ég sem framsögumaður málsins lét skoða með hvaða hætti væri hægt að veita einhvern afslátt á gjaldinu fyrstu mánuði næsta árs til að auðvelda bílaleigum að taka upp kerfið. Það eru hins vegar dálítið dýrar aðgerðir, svo það sé sagt. En mig langar bara að inna þingmanninn aftur eftir því að ef það væri farin sú leið að hafa 70% varanlegan afslátt, ég er bara að hlusta á sjónarmið, og síðan hafa einhvern afslátt af t.d. daggjaldi fyrir bílaleigur fyrstu mánuði næsta árs til þess að trappa það niður, myndi þá þingmaðurinn fallast á frumvarpið?