157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[15:57]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir sína góðu og ítarlegu yfirferð, enda hefur hann fylgt þessu máli eftir ansi lengi hér í þinginu og ætti að vera farinn að þekkja það vel. Það er eitt sem hann kom aðeins inn á í sínu máli og mig langaði aðeins að fjalla meira um við hv. þingmann, þ.e. varðandi áhrifin á landsbyggðina. Það er eins og það komi ítrekað fyrir í meðförum þingsins þegar fjármálaráðuneytið og aðilar sem standa að baki þessu frumvarpi koma fyrir þingnefndina og talað er um að þetta sé landsbyggðarskattur. Þá koma alltaf þau rök að ökutækin hér á höfuðborgarsvæðinu aki miklu meira þannig að það muni ekki koma sér illa fyrir landsbyggðina. En þarna er svo þröngur og einsleitur fókus meðan landsbyggðaráhrifin koma allt öðruvísi fram. Eins og hv. þingmaðurinn kom inn á var það hvernig kílómetri nýtist eitt atriði. Það eru þungaflutningarnir, bæði á vöruflutninga frá landsbyggðinni á markaðinn, upp á rekstrarhagkvæmni þess að framleiða vörur úti á landi eða flytja starfsemina af landsbyggðinni til Reykjavíkur. Það er að flytja nauðsynjavörur út á land. Það er starfsemi íþróttafélaganna, það er umfang ferðaþjónustunnar. Þetta er mikið þannig. Mig langaði því svolítið að spyrja hv. þingmann hvernig hann upplifir þessa umræðu, hvort ég sé einn um það að finnast svolítið þeir sem bera ábyrgð á þessu frumvarpi skauta fram hjá þessum landsbyggðaráhrifum. Þeir svara því aldrei, fara alltaf í sömu rökin um að þetta komi vel út fyrir dísilpatróljeppa en engan annan.