kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni kærlega fyrir andsvarið. Það er alveg rétt, rökin eru yfirleitt þau að þetta komi dísiljeppanum vel, sem þau eru reyndar að leggja á vörugjöld núna sem mun þýða töluverða hækkun á þeim ágæta, góða bíl. — Er ég að misskilja eitthvað? (Gripið fram í.)
En varðandi áhrifin á landsbyggðina þá tek ég undir þær áhyggjur, virðulegur forseti. Ég hef áhyggjur af þeim. Mér finnst því miður einhvern veginn allt of lítið vera gert með þessi landsbyggðargleraugu hér í okkar lagasetningu. Við erum að fá sveitarfélögin, við erum að fá landshlutasamtökin, í mörgum tilfellum erum við að fá Byggðastofnun sem er að benda á ágalla eða eitthvað sem betur mætti fara í viðkomandi lagasetningu fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Við höfum því miður séð það allt of oft gerast núna að það er einhvern veginn ekki hlustað á eða ekki horft til þeirra sjónarmiða. Talandi um þetta mál, það er rétt hjá hv. þingmanni og ég kom inn á það áðan: Við erum bara í varnarbaráttu á mörgum stöðum á landsbyggðinni þar sem við erum að reyna að koma upp þjónustu. Við erum að reyna að koma upp fyrirtækjum og sannfæra fyrirtækin og þeirra eigendur og starfsmenn um að það sé bara mjög gott að vera úti á landi og sveitarfélagið geti tekið vel á móti viðkomandi. Þá er þetta ekki í takt við það, þetta er ekki að hjálpa. Þetta er ekki að hjálpa sveitarfélögunum, sveitarstjórnarfólkinu sem er að reyna að draga til sín störf og starfsemi. Þetta er ekki að hjálpa þeim sem eru nú þegar í rekstri og vilja halda áfram í rekstri að fá aukinn kostnað, bæði í því að sækja vöruna (Forseti hringir.) suður og senda hana frá sér. Þannig að það vantar þessi landsbyggðargleraugu, ég er alveg sammála því.