kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína góðu yfirferð, enda er hann orðinn vel inni í þessum málum. Því langar mig aðeins að halda áfram með einmitt þennan kostnað landsbyggðarinnar. Fyrst þegar málið var kynnt þá átti þetta að vera tekjuhlutlaust, aðeins kerfisbreyting sem átti að bregðast við einhverri þróun fram í tímann. En svo kom einhvern veginn á daginn að þetta á núna, í þessu tilviki, að skila 3,3 milljörðum. Þá eru tekjurnar svolítið sóttar út á land, t.d. með hækkun skipagasolíu, sem getur haft áhrif á skemmtiferðaskipin og annað slíkt, en líka ekki síst í þungaflutningum. Þetta er augljóslega enn ein skattlagningin á landsbyggðina þannig að einu aukatekjurnar út frá tekjuhlutleysinu sem átti alltaf að vera koma af þessari landsbyggðarstarfsemi. Ég hef heyrt af því að Avis á Ísafirði sé líka að loka þannig að kannski verður bara ekkert Avis í kjördæmi (Forseti hringir.) hv. þingmanns eftir þetta. Það gæti verið eitthvað sem verður erfitt að vinda ofan af. (Forseti hringir.) Ef þetta kerfi tekur við getur verið erfitt að leiðrétta þetta eins og allar hinar skattahækkanirnar(Forseti hringir.) sem þarf að leiðrétta frá þessari ríkisstjórn.