kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Punkturinn er kannski akkúrat þarna, virðulegur forseti. Hann er kannski akkúrat þar sem hv. þingmaður skildi við. Þessar breytingar, þessar skattahækkanir sem við erum að sjá núna, sem margar hverjar eru að bitna mjög hart á landsbyggðinni, hafa áhrif, að sjálfsögðu. Það er stundum talað hér eins og það hafi engin áhrif, það skipti engu máli þó að verið sé að íþyngja fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni, að þetta hafi bara engin áhrif á fyrirtæki, hafi engin áhrif á reksturinn. Við munum nú eftir umræðunni í veiðigjöldunum, það bara skipti engu máli, það var nóg til. Nú erum við að sjá þetta. Það er ekki búið að festa staðfesta þetta en þetta er strax farið að hafa áhrif á rekstur fyrirtækja á landsbyggðinni.