157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:05]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Þegar ég var að huga að andsvari þá ætlaði ég einmitt að spyrja nákvæmlega út í þessa þætti sem hv. þingmenn fóru síðan í umræðu um, þ.e. landsbyggðina. Ég get ekki séð betur en að vörugjöldin og síðan aftur þetta með kílómetragjaldið gæti haft mikil áhrif á rekstur bílaleiga sérstaklega sem eru mikilvægur þáttur í því að dreifa erlendum ferðamönnum vítt og breitt um landið og þá sérstaklega gagnvart þeim byggðum sem eru fjærst höfuðborgarsvæðinu. Hinni svokölluðu árstíðasveiflu var nánast útrýmt fyrir tíu, tólf árum hér á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandið er nánast orðið laust við árstíðasveifluna en norðurhluti landsins á bara í mikilli baráttu við þetta og það er fullkomlega klárt að það sem verið er að auka í skattheimtu núna, bæði í gegnum vörugjöldin og síðan kílómetragjaldið, mun hafa áhrif þar. Það er áhugavert að vita og sá sem hér stendur ætlaði að spyrja út í hvort hv. þingmaður væri farinn að sjá einhver áhrif á sínum heimasvæðum: Norðvesturlandi, Skagafirði, Húnavatnssýslunum, Vestfjörðum. Það er betra ástand kannski að einhverju leyti í Borgarfirði og á Snæfellsnesinu yfir árið. En fyrir okkur sem höfum haft mikinn áhuga á að vinna gegn árstíðasveiflunni á stórum hluta landsins í ferðaþjónustu þá eru þessi mál sem er verið að bjóða upp á núna bara mikið áfall og áfall fyrir þá uppbyggingu. Beina flugið á Akureyri hefur haft mikil áhrif á því svæði. Síðan eru líka önnur svæði þar sem þetta mun klárlega hafa mikil áhrif á bílaleigubílana og þessar hringferðir sem hafa verið að byggjast upp að vetrarlagi. Ef hv. þingmaður gæti komið aðeins inn á þennan þátt varðandi hringferðirnar, dreifinguna og gistinætur.