kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirtaksandsvar. Þetta er alveg rétt með árstíðasveifluna. Ég hef verulegar áhyggjur af því og þetta er hlutur sem við erum búin að vera að berjast við á mínu svæði á Norðurlandi vestra og að einhverjum hluta á Vestfjörðum líka, að reyna að ná inn vetrarferðamennsku í meira mæli. Ég held að það sé nú alveg sveifla í Borgarfirðinum líka þó að hún sé kannski minni. Ég ætla nú ekkert að fara að mála þetta með mínum öllum dekkstu litum en ég hef áhyggjur af þessu, ég hef raunverulegar áhyggjur af því að þetta frumvarp muni leiða til þess, eins og ég sagði hér áðan, að það verði minni akstur og ferðamenn muni dreifast á styttri radíus í kringum höfuðborgarsvæðið heldur en hefur gert. Það mun þýða, eins og ég sagði hér áðan — þetta hefur allt áhrif, virðulegur forseti. Þetta mun hafa áhrif og hvar hefur þetta áhrif? Jú, þetta mun hafa áhrif þar sem ferðamennirnir koma ekki.