kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Í allri umræðu hefur þetta kannski ekki verið metið neitt sérstaklega. Ég sit ekki þessa stundina í hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem málið fer fyrir. Mat á áhrifum málsins og hvaða áhrif þetta hefur á þessa stærstu atvinnugrein landsmanna, atvinnugrein sem er með 9% af landsframleiðslu og yfir 30% af gjaldeyristekjum. Ég held að allir átti sig á því að það eru gríðarlegir hagsmunir undir. Hún hefur haft gríðarleg áhrif á allt landið í atvinnulegu tilliti undanfarin ár og sérstaklega hvernig hlutirnir hafa þróast síðustu 15 árin í ferðaþjónustunni, farið úr 500.000 ferðamönnum í 2,2–2,3 milljónir eins og þetta er búið að vera síðustu ár og árin fyrir Covid líka, svipaðar tölur. Svolítið vonleysi sem maður heyrir í kringum málið einmitt á þessum erfiðustu svæðum, gagnvart árstíðasveiflunni og hvaða áhrif verða þar.
Að lokum, herra forseti, klukkan er búin að vera í algeru rugli meðan á þessu andsvari stóð. Er ég ekki búinn með tímann annars?
(Forseti (IngÞ): Jú.)