kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og treysti því að ég fái uppsafnaðan tíma hans í mitt andsvar. En varðandi mat á áhrifum þá er í frumvarpinu á bls. 32 mat á áhrifum, mat á áhrifum á tekjur, mat á samfélagslegum áhrifum og farið yfir þetta allt. Ég hvet hv. þingmann til að lesa þetta. Það er nú ekki mikið verið að horfa á landsbyggðina í þessu, ekki með þeim gleraugum sem ég held að ég og hv. þingmaður hefðum notað ef við hefðum verið að gera þetta og leggja þetta mál fram. Ég bara deili áhyggjum hv. þingmanns. Við notum ekki okkar landsbyggðargleraugu nógu mikið þegar við erum að rýna í þessi frumvörp. Og enn og aftur, þetta frumvarp mun hafa áhrif og það er nú þegar byrjað að gera það.