kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína framsögu. Það er nokkuð ljóst að til þess að spyrja um allt sem þar kom fram þarf miklu meira en tvær mínútur. Mig langar kannski að byrja á því að spyrja: Hvar er þessi samdráttur í tekjum núna síðastliðin ár eftir að aðrar ráðstafanir voru gerðar? Hver er hinn raunverulegi samdrátturinn við notkun á vegakerfinu? Telur hv. þingmaður rétt að nefna eingöngu einkabílinn sem áhrif á landsbyggðina en ekki þau áhrif sem þetta hefur á ferðaþjónustuna og bílaleigubílana, dreifingu ferðamanna, bílaleigukostnað íþróttafélaganna, fækkun á útibúum bílaleiganna, hækkun flutningskostnaðar og annað slíkt. Er það ekki eitthvað sem við þurfum að hafa áhyggjur af? Svo kannski að lokum, til að reyna að forgangsraða spurningunum til að gefa hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur svigrúm til svara þeim: Hvar má sjá þess merki í fjárlögum, fjármálaáætlun og nýframlagðri samgönguáætlun að þessar tekjur séu að skila sér í vegakerfið? Ég heyrði að hún fór yfir ýmislegt en hæstv. ríkisstjórn er búin að lofa því öllu með því að skila tekjum veiðigjaldsins, sem komu nú af landsbyggðinni og eru farin að hafa neikvæð áhrif, þær áttu að fara í þetta og þær tölur passa saman. Hvort voru rökin fyrir skattahækkunum á veiðigjöldunum til að fara í vegakerfi eða þessi? Ég þarf að vita hvort það er.