kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessar góðu spurningar. Ég er fegin að ég fái að koma hér upp tvisvar því það er ekki nokkur leið fyrir mig að komast yfir allt þetta. Hann endaði hér á veiðigjöldunum, að þau hefðu átt að skila sér í vegina og einhverja innviði. Já, þau áttu að gera það. Veiðigjöldin eru hvað, 15 milljarðar, er það ekki samkvæmt nýjustu útreikningum? Það dugar engan veginn til þess að standa undir viðhaldi vegakerfisins. Það þarf miklu meira til, eins og hv. þingmaður veit auðvitað. Við erum að setja 62,3 milljarða í samgöngur yfirhöfuð á árinu 2025. Hækkun á veiðigjaldi hrekkur ekki til í því samhengi. Við verðum að fá meiri tekjur til að standa undir öllu þessu. Þetta er kostnaður sem þú ert að borga en ávinningurinn er svo gríðarlega mikill. Það er bara gríðarlega gott fyrir sjávarútvegsfyrirtækin að keyra á góðum vegum. Þau þurfa að koma sínum afurðum á markað þannig að ég myndi telja að það væri gott fyrir þau. Ég skrifaði meistararitgerð mína um samkeppnishæfni vestfirskra sjávarútvegsfyrirtækja. Það var það fyrsta sem öll sjávarútvegsfyrirtækin nefndu, við verðum að hafa góðar samgöngur. Þetta er bara rannsókn sem ég framkvæmdi árið 2020. Ég hvet nú hv. þingmenn til að kíkja á Þjóðarbókhlöðuna og renna yfir þann góða lestur.
Hv. þingmaður spurði mig um áhrif á bílaleigur og ferðaþjónustuna o.fl. Mér sýnist að ég verði að bíða með það fram í næsta svar af því að það er einmitt afskaplega góð spurning. Hann spurði mig líka um rýrnun á tekjunum. Ég er fyrir framan mig bara með tekjur frá árinu 2006–2023 en ég get leitað að þessu ef það hjálpar þingmanninum og þá getum við kannski bara rætt það í kaffi á eftir. En ég er ekki með þær tölur fyrir framan mig.