157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:33]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin við andsvarinu en verð að viðurkenna að þau bjuggu til fleiri spurningar heldur en svör. Til að upplýsa hv. þingmann til að byrja með þá er einmitt eftir 2023 búið að bregðast við þeirri rýrnun sem hv. þingmaður lagði mikið upp úr sem rök fyrir þessu máli. Mér finnst svo skrýtið að hér sé verið að tala um rýrnun á tekjum sem eru ekki til staðar. Það gengur ekki upp, virðulegur forseti, að mínu viti. Ég verð að nýta síðara andsvarið, og vona að ég fái frekari svör seinna, til þess að spyrja varðandi samgönguáætlunina. Hækkunin á veiðigjöldunum, sem átti að vera upp á 7,6 milljarða, er það sem er skilað í aukið viðhald á vegunum sem er vel og til að draga úr tapinu á vetrarþjónustunni. Það kemur ekkert fram í samgönguáætlun um að það eigi að auka hana heldur bara að hún verði ekki áfram í tapi. Það er eina viðbótin sem þessi stjórnvöld (Forseti hringir.) setja frá síðustu stjórnvöldum, þessir 7 milljarðar. Hvað á þessi peningur þá að fara í, þessir 11 milljarðar sem á að sækja til notenda ökutækjanna, (Forseti hringir.) og ekki er gert ráð fyrir í samgöngurnar og er viðbót þessara stjórnvalda?