kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Það er gaman að þessu. Ég held að við hv. þingmaður séum algjörlega sammála um að þessir peningar verði að skila sér í vegina. Ég vil bara vekja athygli á fyrirspurn hv. þm. Jóns Gunnarssonar sem situr hér um gjöld af umferð sem birtist núna í september; það er mjög gagnlegt svar og var mikil augnaopnun fyrir mig um hvers vegna þessi gjöld eru. Mig langar að ræða aðeins við hann varðandi ferðaþjónustu og kílómetragjald og allt það. Ég hef alveg skilning á því að það reynist ökutækjaleigum erfitt að breyta um kerfi og þeim þykir snarpt að byrja núna að þurfa að skipta um kerfi. En þau eru komin eitthvað af stað, þau eru með eitthvað af rafmagnsbílum í bílaflotanum sínum þannig að þau þekkja væntanlega vel til. En þeirra viðskiptavinir, alveg eins og sjávarútvegurinn og íbúar landsins, vilja líka fá góða vegi. Eigum við að ræða öll þessi hræðilegu slys sem hafa orðið á ferðamönnum hér á landi? (Forseti hringir.) Ég er ekki svona svartsýn, að ferðaþjónustan sé bara öll á hliðinni. Ég hlustaði á frábært viðtal við ferðamálastjóra þar sem hann sagði að útlitið væri gott, það væri bara góð bókunarstaða fyrir næsta sumar.