kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu þó að ég sé um margt mjög ósammála því sem hv. þingmaður segir. Auðvitað hefur þetta áhrif. Auðvitað hefur þetta áhrif, hv. þingmaður, menn verða bara að tala um hlutina eins og þeir eru. En ég er aðeins að velta fyrir mér tekjunum. Hv. þingmaður segir hér að 15 milljarðar í veiðigjöld séu engan veginn nóg til að borga fyrir vegakerfið. Nei, það er alveg rétt, enda voru veiðigjöldin upphaflega ekkert hugsuð til þess að borga fyrir vegina í landinu en hins vegar voru þeir 7,5 milljarðar, sem var aukning í síðasta frumvarpi — það var talað um að þeir ættu að koma til aukningar og það ætti að nota þá í vegakerfið, m.a. á landsbyggðinni. Þessir 3,3 milljarðar sem við erum að ræða hér í kílómetragjaldinu eiga að koma til aukningar í vegakerfið og 7,5 milljarða í vörugjöld á líka að nota í vegakerfið. Þetta eru 18 milljarðar, virðulegur forseti. Þetta eru 18 milljarðar sem ríkisstjórnin er búin að tala hér um, í nokkrum frumvörpum, sem allir eiga að fara í aukningu og bætingu á vegunum okkar. Raunveruleikinn er sá að við erum með 43 milljarða í dag. Ef þú tekur samgönguáætlun og tekur samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins út fyrir sviga sem eru 6–7 milljarðar á ári, sem átti alltaf að vera fyrir utan samgönguáætlun, þá erum við bara í svipaðri tölu og samgönguáætlunin sagði til um síðast, 34–35 milljarðar. Hvar er aukningin? Hvar er aukningin á landsbyggðinni? Aukningin á landsbyggðinni er ekki í samgönguáætlun.