kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég skildi eiginlega ekki alveg fyrirspurnina. En ég skildi það að þingmaðurinn er mér ósammála í mjög mörgu og það er virðingarvert og við þurfum auðvitað ekki að vera sammála. En ég skildi ekki alveg spurninguna. Hann er væntanlega að tala um heildarframlög til samgöngumála. Hér áður fyrr, fyrir árið 2015, vorum við með markaðar tekjur til ákveðinna málaflokka, til að mynda til samgöngumála. Ég veit ekki hvort hann sé að vísa í það. En við erum að taka tekjur víða að til að reyna að borga þessa gríðarlegu skuld sem til að mynda ríkisstjórnin sem hann studdi skildi eftir sig. Ég ætla ekkert að erfa það við hann. Þetta er bara verkefni sem við erum í og við þurfum bara að finna tekjur fyrir þessu. En ég náði þessu ekki alveg því að ég myndi halda það að ef horft er á samgönguáætlun, sem ég segi að marki nýja stefnu og nýja sókn til framtíðar þegar kemur að samgöngumálum, þá er náttúrlega mjög mikið að renna til landsbyggðarinnar og þar eru mörg alveg gríðarlega mikilvæg verkefni eins og ég ræddi hér áðan. Við erum að bæta mjög mikið í viðhald vega, um helming, og við verðum komin upp í 20 milljarða í viðhald vega 2027. Það munar um minna. Hv. þingmaður notar náttúrlega vegakerfið jafnvel meira en ég, af því að ég nota líka flugið, og hann sér það hvað viðhald vega getur gert mikið. Það voru settir 3 milljarðar í sumar aukalega í viðhald og það gerði gríðarlega mikið. Ég held að við hv. þingmaður séum sammála um það.
Hann var með einhverjar efasemdir um að þessi gjöld sem við erum að taka af umferð skili sér ekki örugglega í vegakerfið. Jú, ég er alveg sannfærð um að þau gera það. Ég myndi segja að það þyrfti reyndar að finna fleiri tekjustofna, ef við værum í fullkomnum heimi, en þetta er eins og það er og þetta gerir gríðarlega mikið. Það þyrfti auðvitað að gera meira en þá þarf að finna einhvers staðar tekjur fyrir því.