157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:43]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það gæti skipt máli að ég er ekki vinna með sömu tölur og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef eru áætlaður 62,3 milljarðar til samgangna í fjárlagafrumvarpinu. Ég veit ekki hvaða tölur hann er að vinna með. (SVS: Úr fjárlagafrumvarpinu.) Ég vona að við séum að tala um það sama. Það hefur verið þannig að það er búið að vera einhvers staðar á reki hvaða upphæðir fólk er að vinna með. Ég hef heyrt hér úr þessum ræðustól fyrr í dag að við séum að taka 100 milljarða af almenningi og fyrirtækjum í gjöld af umferð og það er einfaldlega ekki rétt. Þá held ég að fólk sé að taka virðisaukaskattinn með. Ég held að við hv. þingmaður þurfum aðeins að samhæfa okkur svo að við séum með algjörlega sömu gögnin. En ég hef alveg verið skýr á því að hækkun á veiðigjöldum átti sannarlega að skila sér til landsmanna og ég mun tryggja að svo verði.