157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:46]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir góðar spurningar. Það er alveg rétt hjá þingmanninum; ég var svona í breiðu línunum, af hverju við þurfum að skipta um kerfi og af hverju við værum að gera það sem við þyrftum að gera. Við sem stöndum að baki þessu nefndaráliti stöndum að sjálfsögðu með þessu máli, annars hefðum við ekki skrifað undir það. Ég veit að ég fór ekki í pólitík til að láta kílómetragjaldið verða að lögum. Það er auðvitað ekki þannig. Þetta er bara eitt af þessum verkefnum sem við fáum og við fengum það svo sannarlega í arf frá fyrri ríkisstjórn en það þýðir ekki það að málið sé ekki gott. En það sem mér finnst áhugavert er að þeir flokkar sem studdu málið í síðustu ríkisstjórn virðast vera á móti því núna. Það finnst mér skrýtið.(Gripið fram í.) Það er búið að betrumbæta málið. Þess vegna bara skil ég þetta ekki. Nema hv. þm. Vilhjálmur Árnason sem var svo sannarlega á móti því í fyrri ríkisstjórn. En hv. þingmaður hleypur undan málinu núna sem mér finnst mjög áhugavert. Hann hefur sínar ástæður fyrir, það eru einhverjir þúsundkallar í aftanívögnum sem hann hefur áhyggjur af. Gott og vel. Ég hef alveg skilning á því. Ég vil líka passa upp á landsbyggðina.

Mig langar að segja það við hv. þm. Þorgrím Sigmundsson: Að sjálfsögðu höfum við lesið allar umsagnirnar. Ef við hefðum ekki gert það þá værum við ekki starfi okkar vaxin. Okkur ber að lesa þær og hlusta á þær. Svo verðum við að meta hvað við tökum tillit til og hvað ekki. Bílaleigurnar hafa teiknað upp frekar dökka mynd af áhrifum og afleiðingum af þessu gjaldi. Ég hef alveg ákveðinn skilning á því. Þær tala um að það sé skammur tími en mitt svar við því er að þetta er búið að vera í undirbúningi síðan 2021. Þetta er í þriðja skipti sem þetta er lagt fram á þinginu þannig að það hefur svo sem verið góður tími til að huga að breytingum. Að sjálfsögðu hef ég lesið umsagnirnar en við komum til móts við bílaleigurnar með breytingartillögum (Forseti hringir.) sem ég fæ kannski að segja frá í seinna andsvari.