kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Mig langar aðeins að halda áfram að fara yfir það sem fram kom í máli hv. þingmanns þar sem hún nefndi m.a. að hluti af vandanum væri að þróun í bílum hefði gert það að verkum að þeir væru sparneytnari — sem ég tel reyndar að falli nú sérstaklega vel að öðrum markmiðum sem hv. þingmaður hefur staðið fyrir. En hefur hv. þingmaður velt því fyrir sér hvaða aðrir kostir hafa fylgt þeirri þróun? Þessir nýju og sparneytnu bílar eru mun léttari, það eru minni vélar í þeim. Samanborið við sambærilegan rafbíl munar ekki bara nokkrum kílóum þar á. Niðurbrotskrafturinn á sambærilegum rafbíl eða til að mynda nýlegum bensínbíl er verulegur, bensínbíllinn er mun léttari.
Annað sem mig langar að spyrja um í blálokin — það er svo margt, hv. þingmaður, sem ég myndi gjarnan vilja spyrja um, en ég renn út á tíma hér eins og alltaf — varðandi þessa meintu hagkvæmni við rafbílana: Getur hv. þingmaður fullvissað íbúa þessa lands um að það verði ekki lægri afskriftir af rafbílum, þ.e. að fólk tapi ekki stofnfé sínu hraðar með því að kaupa rafbíla?