157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[16:50]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef ég leyfi mér að klára að segja frá því sem við erum að gera til að bregðast við áhyggjum ökutækjaleiganna. Eitt af því sem kom fram, bæði í umsögnum þeirra og þær komu að sjálfsögðu líka fyrir nefndina, var að bílaleigur geta valið um að vera á daggjaldi eða kílómetragjaldi, eins og þingheimur veit. Þeim fannst vera stuttur tími samkvæmt frumvarpinu um hvenær þau gætu skipt úr daggjaldi yfir í kílómetragjald. Nefndin hlustaði á þau sjónarmið og fækkaði þeim dögum niður í 15 en áður var það heill almanaksmánuður þannig að þú þarft ekki lengur að binda bílinn þinn í heilan mánuð. Þú getur gert það bara núna í 15 daga og það eykur sveigjanleika hjá bílaleigunum. Það gerðum við eftir að hafa hlustað á bílaleigurnar og þær höfðu einmitt áhyggjur af þessum þætti málsins.

Svo vil ég líka benda á að það eru endurskoðunarákvæði í frumvarpinu. Ef það verður enn frekari þróun, eins og hv. þingmaður er að vísa í, þá verðum við að taka tillit til þess hver þróunin er í þyngd bensínbíla. En nýja kerfið er auðvitað þannig að það er greitt eftir þyngd bíls.