157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:12]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir mjög fína yfirferð og góða ræðu. Við hv. þingmaður erum á svipuðum slóðum, við eigum svolítið eftir til þess að úttala okkur um þetta mál. Mig langar að halda svolítið áfram með þá umræðu sem ég átti við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur áðan varðandi það fjármagn sem er að fara í samgöngumál og það fjármagn sem er búið að lofa í aukningu á samgöngumálum vegna þess að ég veit að hv. þingmaður er bæði minnugur og töluglöggur. Ef ég man umræðuna rétt, og ég ætla að biðja hv. þingmann um að leiðrétta mig ef svo er ekki, þá átti 7,5 milljarða aukningin, aukningin á milli ára, í veiðigjöldunum að fara í samgöngur á landsbyggðinni. Í umræðunni um vörugjöldin, 7,5 milljarðar, átti aukningin að fara í samgöngumál, 3,5 milljarðar í þessu frumvarpi, aukning, þetta er allt aukning, átti að fara líka í samgöngur og uppbyggingu vega, sem er gott. Þetta eru 18,3 milljarðar. Í samgönguáætlun fyrir árið 2025 settum við hv. þingmaður 36,5 milljarða í fjárfestingarframlög. Nú er sami liður 43.

Ég ætla að spyrja hv. þingmann að því hvort hann sé ekki að skilja þetta á sama hátt og ég, að aukningin sé 7,5 milljarðar í fjárfestingarframlög sem eru langt undir þeim 18,3 sem var lofað. Er ég ekki að skilja þetta rétt, hv. þingmaður?