kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og deili því með honum að það er svolítið flókið að reyna að koma þessum tölum heim og saman. En alla vega miðað við mína útreikninga og það sem ég hef séð hér þá erum við langt undir þeirri tölu sem ríkisstjórnin og talsmenn meiri hlutans hafa lofað í hinum ýmsu málum.
Mig langar að spyrja hv. þingmann út í ferðaþjónustuna, vegna þess að ég veit að hann hefur mikla og djúpa þekkingu á þeim málaflokki, og um þessa kílómetragjaldsumræðu og áhrifin á ferðaþjónustuna úti á landi. Ég sagði í ræðu minni áðan að þetta myndi hafa áhrif og við erum byrjuð að sjá þessi áhrif núna með lokun á útibúum bílaleiganna, bæði á Sauðárkróki og mér skilst á Ísafirði þar sem Avis er búið að boða lokun og það er algjörlega tengt þessari breytingu. Nú eru blikur á lofti í ferðaþjónustu á Íslandi, við sáum Play falla og þó að afkoman hafi verið góð hjá Icelandair í síðasta mánuði þá eru blikur á lofti þar, bókunarstaða gistinátta á hótelum er erfið og bílaleigurnar eru að fara í veruleg vandræði. Hv. þingmaður kom aðeins inn á það í sinni ræðu að ferðaþjónustan er risastór þáttur í efnahagsumsvifum landsins. Ég held að við hv. þingmaður höfum verið á sama nefndafundinum og saman í fjárlaganefnd þegar sviðsmyndirnar þrjár komu fyrir ári þar sem eina breytan um hvort staðan yrði góð, miðlungs eða slæm var fjöldi ferðamanna. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort við séum ekki orðin svolítið værukær varðandi þessa risastóru og mikilvægu atvinnugrein okkar. Í staðinn fyrir að vera að höggva í hana endalaust og reyna að taka úr henni fjármagn, væri ekki skynsamlegra að fara í hina áttina og reyna að styrkja stoðir m.a. bílaleiganna og ferðaþjónustunnar?