157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:19]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er sífellt verið að sparka í ferðaþjónustuna í gegnum skattheimtu, ætli þær séu ekki að nálgast 200 milljarða, skatttekjur ríkisins af ferðaþjónustunni. Það hefur vaxið gríðarlega hratt, það er engin atvinnugrein að borga annað eins inn til ríkisins í gegnum almenna skattheimtu. Við þekkjum það sem höfum verið og unnið lengi í fjárlaganefnd hvað þetta hefur haft gríðarleg áhrif á ríkisreksturinn, á íslensku krónuna, jafnvægið í henni, en í stóru myndinni hvað þetta hefur gefið íslenska ríkinu miklar skatttekjur. En í þessum þingsal hefur aldrei verið almenn umræða um þessi mál og efnahagsleg áhrif ferðaþjónustunnar á okkar umhverfi sem við búum við á Íslandi í dag, 9% af landsframleiðslu, sjávarútvegurinn er með 8%. Þetta eru svona tvær höfuðatvinnugreinarnar, stóriðjan 3–4% og síðan þessar nýju greinar sem eru að koma upp. En við þurfum að gera miklu betur og ég var að kalla eftir áhrifamati á atvinnugreinina áðan, það er áhrifamat í kílómetragjaldsfrumvarpinu um almenn áhrif á byggðir og kannski íbúa á svæðum og svona, en ég var að tala um atvinnugreinina, hvaða áhrif þetta hefur á hana vegna þess að umsvif ferðaþjónustunnar í okkar hagkerfi eru mikil og væri best til lengri tíma að væru svona 25–30%. Það má kannski ekki vera með allt of mikið í einni atvinnugrein og þannig eru hlutir að þróast. Ég held að þessi atvinnugrein muni eiga stóran þátt í að viðhalda þeim góðu lífskjörum sem við búum við á Íslandi en það má ekki ganga frá gullgæsinni með þetta atriði og stunda þannig skattheimtu að gera út af við þetta umhverfi sem við höfum byggt upp. Það eigum við að hafa í huga þegar við ræðum svona almennt skattheimtu á íslenska ferðaþjónustu.