kílómetragjald á ökutæki.
Forseti. Mig langar aðeins að spyrja hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson út í það sem hann kom aðeins inn á áðan, skipagasolíuna. Það er nefnilega svolítið með ólíkindum að við erum að ræða hér frumvarp um kílómetragjald á ökutæki en á einhvern undarlegan hátt, ég veit ekki hvort þetta er hluti af því að reyna einhvern veginn að fela allar þessar skattahækkanir, er hér verið að hækka skipagasolíu undir þeim formerkjum að það þurfi að fjármagna vegina. Þetta er inni í frumvarpi um kílómetragjald á ökutæki. Skip keyra ekki um vegi. Hv. þingmaður getur kannski sagt mér ef hann veit um slík dæmi. Var ekki nógu langt gengið í veiðigjaldinu að mati hv. þingmanns eða má endalaust hækka skatta á sjávarútvegsfyrirtæki? Eru engin takmörk þegar kemur að þeim? Var þetta viljandi falið inni í þessu frumvarpi eða af hverju telur hv. þingmaður að þessi skattahækkun sé inni í frumvarpi um kílómetragjald á ökutæki? Hækkunin nemur 32% á skipagasolíu. Hækkunin mun nema um 1,2 milljörðum árlega miðað við óbreytta notkun, 1,2 milljörðum árlega á sjávarútveginn í viðbót. En það er bara viðbót við hækkun um 1,4 milljarða sem bættust við 1. janúar, þannig að hlutdeild greinarinnar í kolefnisgjaldi verður á ársgrundvelli 5,1 milljarður. Tilgangurinn er sagður vera sá að huga að umhverfinu. Ég spyr: Ef tekið er út úr þessum fyrirtækjum 5,1 milljarður í þennan málaflokk, er þetta þá ekki farið að virka öfugt? Þetta er eins og einn togari á ári, hátæknitogari sem mengar mjög lítið. Er þetta ekki eitthvað skakkt, hv. þingmaður?