157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:24]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir frábæra spurningu. Ég bara hvet hv. þingmann til að skoða svarið sem ég fékk við fyrirspurn í sumar eða haust um skipagasolíuna, kolefnisgjöldin og annað. Sá sem hér stendur tók nokkrar ræður um þetta í veiðigjaldaumræðunni í sumar, þetta sem snýr að kolefnisgjöldunum á útgerðina. Það er mjög áhugavert vegna þess að á sama tíma og verið var að hækka veiðigjöldin þá hafa líka kolefnisgjöldin verið hækkuð mjög. Hv. þingmaður er væntanlega með töluna, að heildartalan sé komin í 5,1 eftir að þetta bættist við. Það bætast við, ef ég man rétt, 1.100 millj. kr., 1,1 milljarður í þessu frumvarpi og ekkert rætt um það fyrr en það kemur bara upp svona sem aukaatriði, 1,1 milljarður aukalega í kolefnisgjöld á útgerðina, bara svona sem auka, 15% af hækkun veiðigjaldanna. Ég held að þetta sé mikilvægt vegna þess að í umræðunni um veiðigjöldin í sumar benti ég á að Danir hættu að láta sína útgerð borga kolefnisgjöld. Það sem þeir gerðu í febrúar síðastliðnum vegna samkeppnishæfni í umhverfinu, nágrannaþjóðirnar, og ríkið fór að borga styrki til dönsku útgerðanna. Það verður því þannig til 2030 að danska útgerðin borgar ekki kolefnisgjöld. Það sama á við Kanada, Noreg, þar er annars konar fyrirkomulag, menn fá greitt til baka, þannig að við Íslendingar erum alveg á sér parti þarna varðandi samkeppnishæfni íslenskrar útgerðar í þessu. Þetta er eitthvað sem á algerlega heima í þessari umræðu hér. Það er náttúrlega ekki hægt að vera í þessu rugli. Menn verða að vera svolítið sanngjarnir í því hvernig tekist er á við hlutina.