157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:26]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það væri óskandi að sú ríkisstjórn sem við sitjum uppi með núna myndi huga að undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar og styðja við þær eins og nágrannalönd okkar en ekki stöðugt leggja á meiri álögur. Í þessu samhengi langar mig aðeins að ræða hvernig þetta er farið að hafa öfug áhrif. Eitt er sagt vera markmið, að bæta loftslagið með kolefnisgjöldum á sama tíma og öll geta til að fjárfesta eða stór hluti getunnar er tekinn út úr fyrirtækjunum þannig að þau geta ekki fjárfest í nýjum og umhverfisvænni búnaði. Er þetta ekki orðið eitthvað skakkt? Það er fyrsta spurningin. Svo langar mig að tala um að það er samasemmerki á milli allra þessara skattahækkunarfrumvarpa, frá ríkisstjórn sem lofaði að hækka ekki skatta en það er eins og við vitum löngu svikið, sem er að aldrei virðist tekið tillit til breytinga vegna hegðunarmynsturs. Við sjáum þetta í öllum skattahækkunarfrumvörpunum, hvort sem það eru vörugjöld á bifreiðar eða þetta þar sem augljóslega á að skoða hvaða leiðir eru færar. Jú, það er hægt að taka miklu ódýrari olíu í Færeyjum af því að Færeyingar ganga ekki svona fram í skattahækkunum. Og hver reið á vaðið í því? Var það ekki Landhelgisgæslan sem tekur sína olíu þar? Hverjir fleiri geta tekið olíu þar? Það eru stærstu útgerðirnar. Stærstu skipin geta farið þangað og tekið olíu en minni skipin sigla ekki þangað til að taka olíu. Hv. þingmaður ræddi hér samkeppnissjónarmið. Þetta er jafnar ekki samkeppnisstöðu minni útgerðarfyrirtækja. Þetta hjálpar ekki litlu sjávarþorpunum um allt land. Hvað telur hv. þingmaður að skýri þessar álögur ríkisstjórnarinnar?