157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:30]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Við ræðum hér enn eitt skattamál ríkisstjórnarinnar, enn eitt málið til hækkunar skatta og í þessu tilfelli að hluta til afturvirkt. Það eitt og sér sætir tíðindum. Hvers vegna segi ég það? Jú, ég geri það vegna þess að haldi frumvarpið texta sínum eins og það lítur út núna þá tekur það gildi innan örfárra daga, þ.e. strax eftir áramót, og kemur þá með fullum þunga á þá aðila sem leigja út bifreiðar í atvinnuskyni. Þar eru leigusamningar sem er löngu búið að gera fyrir veturinn í vetur og fyrir næsta sumar og þeir voru gerðir miðað við ákveðnar forsendur og verðlagið tók mið af þeim forsendum. Í þessu frumvarpi er þeim forsendum kippt undan þessum fyrirframseldu samningum. Um það er ekki einu sinni deilt. Það skiptir verulegu máli því að okkur tekst nú hér í þessum sal oft að deila um ýmislegt. En það er algjörlega óumdeilt að hér er verið að fara í forsendubreytingar á samningum sem búið er að gera langt fram í tímann, langt fram á næsta ár. Fyrirtækin eiga því aðeins einn valkost. Það er að taka kostnaðinn á rekstur fyrirtækisins. Hann verður ekki sendur hér eftir á viðskiptavinina, svo mikið er víst, enda kæmu þá ekki fleiri viðskiptavinir til Íslands ef það spyrðist út.

Ég mun gera betur grein fyrir seinna í máli mínu, frú forseti, þeim liðum sem lúta að bílaleigunum. En ég vildi þó byrja á því að koma þessu á framfæri því að þessum upplýsingum held ég að sé rétt að halda til haga af því að í þeim eru mikil tíðindi. Hér á að endurtaka, frú forseti, slysið sem við erum búin að vera að glíma við í allt haust sem var þegar fyrirvaralaust var sett innviðagjald á komur skemmtiferðaskipa, á hvern einasta farþega. Tjónið af því frumvarpi var áþreifanlegt. Hringinn í kringum landið hrundu — ánægjulegt, frú forseti, að sjá fjölga hratt í salnum. (BHar: Þetta er svo góð ræða.) Því frumvarpi fylgdi hið óhjákvæmilega, sem excel-forritið hefur ekki enn náð tökum á, sem er breytt mannleg hegðun. Skipin einfaldlega hættu við að koma þannig að stóraukinn skattur á þá sem hugðust koma til landsins varð að engu því skipin bara komu ekki. Það er rétt að nefna í þessu samhengi minni hafnirnar sem höfðu lagt í hlutfallslega mjög mikinn kostnað við að markaðssetja sína vöru, til að mynda Borgarfjörð eystra. Þær upplýsingar sem ég hef, og ég held að standi enn, er að til Borgarfjarðar eystra kemur næsta sumar, svo öruggt sé, eitt skip, frú forseti.

Við höfum tekist á um þetta í þessum sal nú um tíma. Það verður tekist á um þetta í nefndum. Það hefur verið tekist á um hvernig eigi að leysa þetta. Upphaflega voru þetta 2.500 kr. Síðan ákvað ríkisstjórnin að fara með gjaldið niður í 2.000 kr. Við margir þingmenn funduðum með fulltrúum þessara skipafélaga sem sáu að sjálfsögðu fyrir sér að þurfa að breyta sínu leiðakerfi, enda um margt mjög fallegt til að mynda í Norður-Noregi og hefði verið tilfinnanlega lítið vandamál fyrir þau félög að sigla bara þangað. En ríkisstjórnin virtist átta sig á þvílíku stórslysi fyrri ríkisstjórn hafði valdið og reyndi að laga þetta betur og núna stöndum við eftir með 1.600 kr. á farþega. Það má segja að sú björgunaraðgerð sé skárri en ekki neitt en hið eina rétta hefði verið að hlusta á greinina og fresta einfaldlega gildistökunni að lágmarki tvö ár fram í tímann til að gefa fyrirtækjunum tækifæri til að setja þessa auknu skatta inn í verðlagið sitt.

En hver var svo geta okkar til að læra af því máli þegar upp var staðið? Hún er sú að nú ætlum við að endurtaka leikinn, frú forseti. Við erum að endurtaka leikinn. Nú ætlum við að gera þetta við bílaleigurnar og ég mun koma betur að því síðar og með ítarlegri hætti, því að það er alveg með ólíkindum að verða vitni að því hér sem óbreyttur þingmaður að það skuli ekki vera tekið tillit til mannlegrar hegðunar. Við ræddum þetta líka undir öðrum lið hér um daginn í fjárlögunum, undir vörugjöldunum, sem munu auðvitað ekki raungerast vegna þess að þar var heldur ekki tekið tillit til mannlegrar hegðunar. Við ætlum meira að segja að teygja okkur svo langt að við ætlum að fara í fornbílana líka, sem er áhugamál sem talsverður hluti landsmanna stundar, að gera upp og halda úti fornbílum. Í því liggur stór hluti samgöngusögu okkar Íslendinga. Nú setjum við gjöldin á þá.

Við hættum ekki þar, frú forseti. Í rökstuðningnum sem fylgir þessum ræðum sem eru fluttar til að mæla með þessari leið er iðulega talað um sama hlutinn, slit á vegum. Ég veit vel að flestir sjá fyrir sér hjólför en það er í raun kannski minnsti parturinn þegar við ræðum slit á vegum. Þegar við ræðum um slit á vegum og stóra kostnaðinn af því að vegirnir eru að hrynja — það er svokallaður brotkraftur. Það er sá veldisvöxtur sem á sér stað með hverju tonni sem brýtur niður undirbyggingu vegarins, það sem oftast er kallað burðarlag vegarins, og við ætlum að hækka kílómetragjald á mótorhjól vegna þessa, á 200–300 kg ökutæki. Hæstv. fjármálaráðherra sagði hér í ræðu og svari á dögunum að þetta væri m.a. vegna þess að þeir þyrftu ákveðna þjónustu líka, svo sem eins og yfirborðsmerkingar gatna og umferðarmerki. Hvar hættum við þá ef þetta er rökstuðningurinn? Hvað með allt reiðhjólafólkið? Það er líka háð merkingum gatna og það er háð umferðarmerkjum. Eigum við von á skrefgjaldi hér, frú forseti? Gangandi vegfarendur þurfa á þessu að halda líka. Það að ætla að draga mótorhjólin inn í þetta er vægast sagt mjög frumleg hugsun því að það ætti að vera draumasamgöngumáti þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr sem vill — og ég tala nú ekki um þess meiri hluta sem situr í borginni undir þeim kvörtunum að það séu allt of margir einir í bíl á ferðinni og taki allt of mikið pláss á götum Reykjavíkurborgar. Það væri sennilega draumurinn að allir væru bara á hjóli þá mánuði árs sem aðstæður á Íslandi bjóða upp á það.

Svo er annað í þessari umræðu sem er farið að verða að mjög þreyttri lummu, frú forseti, af því að hún heldur engu vatni. Það er þessi frasi sem á að klifa á til að sækja meiri stuðning til handa frumvarpinu. Það er — og reyndar mega þeir eiga það og ég held að þetta hafi nú verið samið áður en þessi ríkisstjórn tók við völdum — að þeir borgi sem noti. Þetta hljómar svo rökrétt að það er eiginlega ekki hægt að vera á móti þessu en það hefur alltaf verið þannig, þeir hafa alltaf borgað sem nota. Þeir sem áttu þyngstu bílana borguðu meiri þungaskatt. Þeir eyddu meiri olíu. Þeir voru með hærri bifreiðagjöld. Þeir voru með hærri tryggingar.

Frú forseti. Þessi frasi þarf bara að fara inn í umræðu að mínu mati hjá forsætisnefnd. Það er ekki hægt að bjóða upp á þennan frasa lengur. Hann er svo ævintýralega vitlaus. Þeir nota meira að segja vegina sem engan eiga bílinn. Það er bara þannig. Þeir hljóta að taka reiðhjól eða leigubíl. Þeir þurfa í það minnsta að versla vörur. Einhvers staðar frá komu þessar vörur. Þær fæddust ekki í búðinni. Ég veit ekki hvort hæstv. ríkisstjórn metur það svo að lambalæri verði til í Nettó. Það þarf að flytja allt á milli landshluta; fólk og vörur. Þess vegna nota allir vegina, ekki bara þeir sem eiga bíl.

Það er af svo mörgu að taka í þessu frumvarpi, frú forseti, sem er svo vont og svo illa hugsað að það er bara með talsverðri sorg sem við ræðum þetta hér. Ég hefði til að mynda gaman af því að spyrja þá sem harðast ganga fram og berjast fyrir þessu frumvarpi hvað þeir vildu í dag segja við íbúa Austurlands eftir að það er nýbúið að kynna samgönguáætlun, sem á reyndar eftir að koma hér til þinglegrar meðferðar. Austurland skaffar nálægt 23, 24, 25% útflutningstekna. Sjást þess merki, frú forseti, í þeirri samgönguáætlun sem hefur verið kynnt? Nei, svo er ekki. Það má finna í henni fögur fyrirheit fyrir komandi ríkisstjórnir.

En aftur að þessu getuleysi, frú forseti, til að læra. Við erum búin að eyða svo miklum tíma í að reyna að vinda ofan af þeim mistökum sem voru gerð varðandi innviðagjöld á skipin að maður hefði haldið að menn myndu aðeins vilja slaka á núna og hugsa: Hvaða afleiðingar hefur það að breyta skatti, ég tala nú ekki um ef hann er hækkaður verulega? Mun það virka þannig að með því að setja stærri tölu inn í formúluna þá komi meira inn í kassann neðar í skjalinu? Nei, það virkar ekki endilega þannig. Í seinni tíð hefur svona hugmyndafræði stundum verið kölluð nikótínpúðahugmyndafræðin. Þetta virkar ósköp einfaldlega ekki þannig. Þá væri auðvitað best að setja bara 100% skatt á allt. Þá segir tölvan að það sé 100% innkoma. Það þarf ekki að hafa rekið fyrirtæki til að skilja að þetta virkar ekki svona. Það er nóg að hafa þurft að reka sjálfan sig.

Þetta mun auk þess, frú forseti, auðvitað höggva harðast þar sem síst skyldi á þeim stöðum sem eiga í mestri varnarbaráttunni. Það eru þeir staðir sem standa fjærst höfuðborginni og þar komum við að öðrum frasa, frú forseti, sem er orðinn hér um bil eins ofnýttur og sá sem ég nefndi hér áðan, sá frasi að — af því að við höfum ekki raunhæfa valkosti á lengstu flutningsleiðunum. Það er ekkert val og það þýðir ekkert að bera þetta saman við þennan frasa að það sé meira keyrt á höfuðborgarsvæðinu að jafnaði að meðaltali heldur en úti á landi og þess vegna sé þetta ekki landsbyggðarskattur. Þetta er bara froðusnakk, frú forseti. Á höfuðborgarsvæðinu stendur flestum, í það minnsta mjög mörgum, ef ekki langflestum, til boða að velja aðrar samgönguleiðir til að komast í þá þjónustu sem þeir þurfa og til vinnu. Slíku er ekki til að dreifa úti á landi mjög víða og er því fólki nauðugur einn sá kostur að nota bílinn, oft á mjög löngum leiðum, þannig að einhver meðaltalsfrasapólitík á bara ekki við hér. Ef þetta fer í gegn óbreytt og íbúar höfuðborgarsvæðisins finna fyrir óbærilegum kvöðum af þessu þá er hægt að taka strætó, það er hægt að hjóla, það er hægt að taka leigubíl, í mörgum tilfellum hægt að ganga, en ætlið þið að segja eftir fjöldamörg ár af hvatningu til sameiningar sveitarfélaga, sem mörg hver eru gríðarlega landmikil og heilu landsvæðin og bara landsfjórðungarnir að verða sameiginleg atvinnusvæði, að fólk eigi að fara hundruð kílómetra til að sækja sér heilbrigðisþjónustu eða til að komast í vinnu, bara af því að það segir í töflunni hjá ríkisstjórninni að að meðaltali sé meira keyrt í Reykjavík? Það breytir í engu þeirri stöðu sem fólkið úti á landi er í.

Ég er enn í inngangi mínum á þessari ræðu, frú forseti, til að reyna að ramma einhvern veginn inn heildarmyndina áður en við förum að brjóta þetta niður og sýna fram á kannski með meira afgerandi hætti hvílíkur óskapnaður er hér á ferðinni en vildi þó segja aftur: Skekking á stöðu og samkeppnisfærni fyrirtækja á landsbyggðinni sem eru í einhvers konar framleiðslu eða jafnvel sjávarútvegsfyrirtæki sem þurfa að koma vöru sinni á markað — það gefur augaleið að flutningsaðilinn, sama hvað hann heitir, sama hversu stór og öflugur hann er, er ekki að fara að taka á sig þennan aukna kostnað. Það er bara ein leið til að bregðast við þessu fyrir viðkomandi aðila og það er að velta þessu út í verðlagið. Þess vegna verður óhjákvæmilega dýrara að koma t.d. hinum frábæra íslenska fiski að vestan, norðan eða austan í fraktflug á markaði erlendis því það er ekkert hægt að senda slíkan fisk með strætó, frú forseti.

Annað sem gerist líka: Bleiupakkinn á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum mun í mörgum tilfellum hækka og Cheerios-pakkinn líka. Í einhverjum tilfellum verður sú hækkun reyndar ósýnileg. Það eru þau fyrirtæki sem keyra á föstu eða sama verðlagi fyrir landið allt. Það eru nokkrar slíkar verslanir. En það þýðir þá líka að það verður hliðarhækkun sem á sér stað í höfuðborginni sem ekki er gert ráð fyrir í frumvarpinu en aðrar verslanir, minni verslanir úti á landi sem eru ekki hluti af einhverri risastórri keðju, eru bara að reka sína einu litlu einingu, hugsanlega nokkrar litlar einingar á minni stöðum á landinu og þær hafa engan valkost, frú forseti, annan en að setja þennan flutningskostnað út í verðlagið, eðlilega. Slík hefur nú ekki framlegðin verið í minni sölueiningum á til að mynda sviði matvöru- eða dagvörumarkaðar. Ég veit ekki um marga, frú forseti, sem reka litla verslun úti á landi og eru að hagnast á því. Ef vel gengur er í mörgum tilfellum hægt að skaffa tvö eða þrjú störf og láta dæmið ganga og í sumum tilfellum meira að segja með aðstoð frá hinu opinbera sem ætlar nú að hækka vöruverðið.

Frú forseti. Þetta var bls. 1. Það er líka vandséð í allri þessari umræðu um til að mynda verðmætasköpunarhaust eða áherslur núverandi ríkisstjórnar á að keyra niður verðbólgu og vexti að þetta muni hjálpa til þar. Nei, þvert á móti, það gefur augaleið og ég held að allir hér inni skilji það, hvort sem þeir tilheyra ríkisstjórninni eða minni hlutanum, að slíkar skattahækkanir hafa þær afleiðingar að ýta undir verðbólgu. Hér er heldur ekki verið að gera Seðlabankanum léttara fyrir í sínum verkum.

Ég kalla líka bara eftir ákveðnum heiðarleika hér, frú forseti. Loksins kannski má segja að þeir sem halda á þessu máli séu farnir að tala alveg hreint út um það að það verði bara að ná í þessa peninga. Ég hyggst reyndar gera grein fyrir því í seinni ræðum að þar er ekki rétt farið með en látum það liggja á milli hluta í bili, að hér sé a.m.k. sýndur sá heiðarleiki og viðurkennt að þetta er eingöngu gert til að hækka skatta. Þetta er ekki vegna þess að við þurfum á því að halda á þessum tímapunkti að fara í einhverjar kerfisbreytingar í innheimtu. Og þá hefði verið miklu heiðarlegra að segja: Við ætlum að sækja meira fé til bifreiðaeigenda. Við sjáum að þróunin er farin af stað. Rafmagnsbílum fjölgar. Það mun væntanlega verða á kostnað dísil- og bensínbíla með tíð og tíma. Við treystum okkur ekki til að bíða eftir því þannig að við ætlum bara að hækka olíugjaldið. Það er eitthvað sem allir skilja og hefði ekki, af því ég nefndi bílaleigurnar hérna áðan, valdið bílaleigunum þessum gríðarlega aukakostnaði, þessu gríðarlega aukna flækjustigi sem hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, sem ég átti orðastað við fyrr í dag, gerði lítið úr. Ég benti henni á umsagnir bílaleiganna þar sem er mjög ítarlega farið yfir það hvaða flækjustig mun fylgja þessari innleiðingu.

Ég tel, frú forseti, að klukkunni hafi verið flýtt og verð að láta hér staðar numið í bili.