157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:51]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans yfirferð á þessu máli, það virðist vera að hann hafi kynnt sér það ansi vel. Mig langar í því ljósi að spyrja hann aðeins varðandi ferðaþjónustuna. Nú var sú sem hér stendur einmitt í ríkisstjórn á síðasta kjörtímabili þar sem voru lagðar álögur á skemmtiferðaskip. Það var þannig að ferðaþjónustan kom með þær upplýsingar að þetta myndi hafa veruleg áhrif á komu skemmtiferðaskipa, líkt og hv. þingmaður kom inn á. Því miður var ekki hlustað nægilega vel á þær áhyggjuraddir. Sem betur fer er stjórnarmeirihlutinn að leiðrétta það núna ásamt okkur í stjórnarandstöðunni. Við höfum verið að vinna að því að lækka þessar álögur á skemmtiferðaskip. Nú þurfum við að vinna áfram upp þann skaða sem hefur orðið í tengslum við ferðaþjónustu skemmtiferðaskipa. Það er afar mikilvægt að þegar við gerum einhver mistök að við viðurkennum þau og að við lærum af þeim. Nú er verið að fjalla um mál einmitt sem tengist þessu kílómetragjaldi og auknum álögum á ferðaþjónustuna, m.a. bílaleigur. Bílaleigurnar hafa verið að tala um að þetta muni valda þeim miklum vandræðum. Þetta verðim líka erfiðara varðandi — ja, hvað skal segja; að þegar ferðamenn koma hér og taka bílaleigubíla fari þeir frekar styttri vegalengdir, jafnvel hætti við að taka bílaleigubíla. Auk þess þurfa bílaleigurnar að leggja út strax fyrir verulegum upphæðum.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvað hann telur að sé mikilvægt að við gerum í þessum efnum til að bregðast við umsögnum og áhyggjum ferðaþjónustuaðila og ekki síður bílaleigum?