157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:53]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrirtaksspurningu hjá hv. þm. Ingibjörgu Isaksen. Við munum væntanlega verja talsverðum tíma hér í umræðu — ja, ég segi næstu daga — um til að mynda umsagnir sem koma frá bílaleigunum. Ég vitnaði áðan í samskipti mín við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur þar sem okkur greindi m.a. á um gegnsæi og almennar afleiðingar á bílaleigurnar. Það er nóg fyrir mig að opna hér bls. 2 í umsögn frá Höldi bílaleigu. Þar er listað upp á mjög einfaldan hátt sem allur þingheimur hefur aðgang að, sem og landsmenn allir í samráðsgáttinni:

„1. Tekjulækkun fyrir ríkissjóð í formi beinna tekna af vörugjöldum

2. Tekjulækkun bifreiðaumboða vegna minni sölu = samdráttur í greininni

3. Tekjulækkun ferðaþjónustu vegna minni sölu ( vegna hærra verðs ) = samdráttur í greininni. Slíkum samdrætti fylgja mikil „ruðningsáhrif“ á alla sem vinna óbeint með greininni eins og t.d. íslenskur iðnaður almennt.“

Þarna er í raun og veru svarið við fyrri hluta spurningar hv. þingmanns: Ruðningsáhrifin eru gríðarleg. Líklegasta niðurstaðan: Tekjutap fyrir alla, ekki bara fyrir bílaleigurnar. Þetta eru líka færri bílar sem þarf að kaupa dekk undir. Þetta eru færri bílar sem þarf að gera við o.s.frv. Þetta eru spíraláhrif sem þarna fara af stað. Hvað þarf að gera? Það þarf að byrja á því að senda skýr skilaboð út í atvinnulífið, út í heim. Við ætlum að bakka með þetta og við ætlum að vinna þetta betur. Verði niðurstaðan samt sem áður sú að við viljum fara í breytingu á kerfinu, einhvern veginn í þessa átt, þá gerum við ekki sömu mistökin og með skipin. Þá sendum við út skilaboð og segjum: Ísland er að hugsa um að leggja slík gjöld á eftir þrjú ár eða eitthvað slíkt. Greinin hefur þá tíma til að aðlaga sig.