157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:55]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir svarið. Það er nefnilega þannig að þetta er ekki bara eitt mál, þetta er ekki bara kílómetragjaldið. Þetta tengist líka vörugjöldum sem eru álögur og þetta tengist líka flutningsjöfnuninni sem er ekki að sinna sínu hlutverki nægilega vel vegna þess að það vantar fjármuni þar inn, alla vega með tilliti til þeirra umsagna sem hafa komið. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í tvennt og athuga hvort hann hafi svör við því. Ég sé hér að það er verið að leggja auknar álögur á akstursíþróttir, 90 millj. kr. Við teljum að íþróttir hafi mikilvægt forvarnagildi fyrir börn og ungmenni. Mér skilst að það hafi átt að vera 100 milljóna álögur, það var tekið 10% tillit til þeirra þannig að þetta eru orðnar 90 milljónir. Er þetta rétt skilið hjá mér? Eins langar mig að spyrja hv. þingmann út í, af því hann nefndi hér fornbíla í sínu máli, ökutæki sem eru undanþegin gjaldskyldu. Ég rak augun í að það eru ökutæki með fyrstu skráningu 1. janúar 1965 en skilgreiningin varðandi fornbíla er auðvitað allt önnur. Hefur hv. þingmaður skýringar á því af hverju þetta nær ekki til fornbíla almennt og skilgreininga um fornbíla eins og er víða um heim?