kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka fyrir spurningarnar frá hv. þingmanni. Aðeins fyrst, af því að hv. þingmaður nefndi flutningsjöfnunina, þá hefur hún náttúrlega, og ég held að það sé reyndar langt síðan, hætt að halda í við flutningskostnaðinn. Þetta mun eingöngu skekkja þá mynd meira. Það hefur verið gagnrýnt í talsvert langan tíma að það gap sem hefur myndast milli getu flutningsjöfnunarsjóðs og hinar raunverulegu þarfar til að jafna vöruverð á landsbyggðinni og höfuðborginni sé löngu orðið miklu meira heldur en brúanlegt er með þeim fjármunum sem settir eru í það núna.
Varðandi fornbílana og þessa nýskráningu 1965 þá er ég ekki með það svar, en mig grunar það og ég held að sú niðurstaða hafi einfaldlega komið fram af því að því eldri sem bíllinn er, og einhvers staðar varð að finna þennan skurðpunkt, því ólíklegra er að hann sé að telja hárrétt. Það er jafnvel í einhverjum tilfellum orðið svo að dekkin sem bílarnir komu á í upphafi eru einfaldlega ekki fáanleg á markaði lengur. Þá ertu kominn með hugsanlega örlítið stærri bana eða örlítið minni bana og þá ertu búinn að breyta talningunni á bílnum. Mig grunar að það séu alls konar tæknilegar ástæður sem menn eru að forðast og fría sig við. Það einmitt beinir sjónum aftur að einu sem við eigum eftir að fjalla mun meira um en það er að í frumvarpinu stendur, hv. þingmaður, að eigandi bifreiðarinnar beri ábyrgð á því að mælirinn telji rétt. Ég velti fyrir mér hversu hátt hlutfall þjóðarinnar hafi einhverjar forsendur til að átta sig á því hvort mælirinn í bílnum telji rétt.