kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Við erum að ræða hér frumvarp um kílómetragjald á bifreiðar, mál sem hefur verið lagt fram áður og er annað þrepið, að mér skilst, í tengslum við það að jafna kostnað þeirra sem nota vegina. Fyrsta skrefið var stigið þegar við settum 6 kr. á rafmagnsbíla fyrir ekinn kílómetra og svo átti þetta að fylgja eftir í tveimur eða þremur þrepum. Þessi vinna hefur verið í gangi í þó nokkur ár og er hugsuð til þess einmitt að jafna hlut þeirra sem nota vegina og er afar mikilvægt jöfnunartól í hugmyndafræðinni. En svo er það spurning um aðferðafræðina og hvernig við framkvæmum þetta sem við leggjum hér fyrir.
Það er kannski eitt og annað sem ég staldraði við þegar ég var að lesa málið. Nú er ég ekki í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og hef því ekki setið þá fundi og fengið til mín gesti í tengslum við málið. Það er afar mikilvægt að við fáum inn fjármuni til að viðhalda vegum en það er spurning einmitt hvernig við nálgumst þetta.
Þetta er auðvitað ein af skattahækkunum ríkisstjórnarinnar og er gríðarlega stórt mál og er kerfisbreyting sem snertir í rauninni samgöngukerfið. Þetta snertir líka fjölskyldur í landinu, hefur áhrif á þær. Þetta hefur áhrif á fyrirtæki og atvinnugreinar um land allt. Ég vil meina, komandi úr Norðausturkjördæmi, að þetta snerti landsbyggðina sérstaklega. Þetta snertir líka ferðaþjónustuna, eins og við höfum fengið að heyra í fjölmiðlum, sem er okkar stærsta gjaldeyrisskapandi grein. Það eru blikur á lofti varðandi ferðaþjónustuna. Við sjáum að bókanir á hótelum þessa mánuðina og fram á næsta ár eru með allt öðrum hætti en hefur verið á undanförnum árum, sem þýðir að við sjáum fram á mikla fækkun ferðamanna.
Það er því ekki lítið mál að ætla hér að innleiða skatt innan tveggja vikna án einhvers aðlögunartíma, án þess að taka mark á ítarlegum umsögnum sem hafa borist frá helstu hagsmunaaðilum og án þess að tryggt sé að gjaldtakan skili því sem henni er ætlað, sem er einmitt uppbygging vegakerfisins. Samtök ferðaþjónustunnar — sem bera ábyrgð á fjölda starfa og gríðarlegum útflutningstekjum þjóðarbúsins, sem er í raun ein af undirstöðugreinum okkar hér á landi — hafa ítrekað sent þingmönnum og efnahags- og viðskiptanefnd upplýsingar um það tjón sem þessi breyting geti valdið ef hún verður innleidd án aðlögunartíma. Mér finnst afar mikilvægt að við stöldrum aðeins við þegar samtök sem standa undir milljarðatekjum landsins segja að breytingin muni hreinlega, með leyfi forseta, ganga af þeim dauðum, að um sé að ræða í reynd afturvirka skattlagningu sem geti valdið verulegu rekstrartjóni.
Þrátt fyrir þetta virðast helstu sjónarmið þeirra ekki hafa fengið efnislega meðferð, því miður, og ekki voru teknar til greina ítarlegar umsagnir fjögurra af stærstu bílaleigum landsins. Þær útskýrðu vel að þær hafa nú þegar gert langtímasamninga við erlenda birgja og ferðaskrifstofur sem ekki verður breytt fyrir áramót, eðlilega. Þar af leiðandi geta þær ekki innheimt þetta gjald sem er að leggjast á núna um áramótin. Það má alveg segja að ef ég væri í stjórnarliðinu þá myndi maður örugglega segja: Já já, en við erum búin að sjá þetta koma í heilt ár, búið að leggja þetta fram áður og það máttu nú allir búast við þessu. Það er kannski alveg rétt en það er afar mikilvægt að það sé fyrirsjáanleiki varðandi ferðaþjónustuna og þegar hlutirnir eru ekki orðnir að lögum þá er kannski ósköp eðlilegt að fólk haldi að sér höndum, hinkri, sjái til og athugi og voni að það verði tekið tillit til þeirra umsagna og þeirra áhyggna sem er verið að bera hér á borð.
Það er því augljóst að þessi skattur mun lenda beint á þessum rekstri, á liðið ár og á samninga sem þegar eru gerðir og á tekjuáætlanir sem ekki geta tekið mið af gjaldi sem kemur svona seint til umræðu, þannig að við erum ekki aðeins að tala um aukna skattlagningu heldur raunverulega bara um tjón, óafturkræft tjón sem fyrirtækin þurfa að bera við ríkissjóð.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa ekki í rauninni hafnað þessari kerfisbreytingu, að mér skilst, með fyrirvara, heldur eru þau að leggja fram, að mér skilst, bara raunhæfar og hófstilltar lausnir sem taka mið af aðstæðum stórnotenda. Ég veit að þau hafa verið að leggja áherslu á það að fresta gildistöku til 1. janúar 2027 þannig að næsta ár, árið 2026, nýtist þá til að útfæra réttláta og tæknilega framkvæmanlega lausn og að ef skattskyldan verður engu að síður virk núna um áramótin að bílaleigur fái að skila því hlutfalli skattsins sem þær geta raunhæft innheimt. Þar er verið að leggja til að það verði 60–65% árið 2026, hækki í 75–80% árið 2027 og 90% árið 2028. Þarna er verið að reyna í rauninni að finna einhverja leið sem er sveigjanleg og kannski aðeins sanngjarnari og stenst samanburð við fordæmi sem þegar eru í frumvarpinu, sem er hlutfallsleg innleiðing fyrir hópbifreiðar. Þingið gæti þá beitt sama verklagi gagnvart öðrum stórnotendum, þannig að í rauninni er verið að óska eftir því að haga innleiðingu málsins þannig að hún rústi ekki rekstri heillar atvinnugreinar heldur sé að reyna aðeins að mæta þeim áhyggjum sem eru bornar á borð.
Virðulegi forseti. Mig langaði aðeins að fara inn á sjónarmið landsbyggðarinnar vegna þess að það er ekki eins og ferðaþjónustan sé einmitt eina atvinnugreinin sem verður fyrir áhrifum af þessu máli. Í frumvarpi sem var áður lagt fram varðandi þetta kílómetragjald var einmitt verið að tryggja að flutningskostnaður á landsbyggðinni myndi ekki hækka með nýja kerfinu. Það var gert ráð fyrir því að tengivagnar myndu greiða 70% gjalds. Þannig var frumvarpið í reynd tekjuhlutlaust fyrir vöruflutninga og í rauninni verið að leita leiða til að koma í veg fyrir að verðhækkunarþrýstingur yrði á líf fólks á landsbyggðinni. Þessu hefur núverandi ríkisstjórn breytt og það er verið að leggja til að tengivagnar greiði 60% árið 2026, 80% árið 2027 og 100% árið 2028. Það má þá skilja það að allur aukinn kostnaður muni velta út í verðlagið á landsbyggðinni. Það verður dýrara að flytja vörur til fólks sem býr fjarri höfuðborginni. Líkt og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson kom inn á hérna áðan þá verður bleiupakkinn dýrari, Cheerios-pakkinn verður dýrari og það verður í rauninni líka dýrara að flytja vörur frá landsbyggðinni, sem hefur bein áhrif á samkeppnishæfni atvinnulífsins þar.
Í því ljósi vil ég líka nefna flutningsjöfnunina sem á að mæta þessum aukna flutningskostnaði til að skapa réttlátari samkeppnishæfni um allt land fyrir fyrirtæki og framleiðsluaðila. Þessi mál tengjast alveg verulega og það er vont að sjá það — af því ég átti hér orðastað við hæstv. innviðaráðherra þegar var verið að ræða þessa flutningsjöfnun og vakti í rauninni athygli hæstv. ráðherra á því að ég hefði áhyggjur af því að það þyrfti að hækka fjármagnið til flutningsjöfnunar. Hann tók því nú mjög jákvætt en að öllu settu og í rauninni í ljósi þess að hér er verið að leggja þetta fram og það er ekki aukning í flutningsjöfnunina þá hefur þetta veruleg áhrif á landsbyggðina og atvinnulíf þar.
Varðandi bílaleigurnar þá langar mig aðeins að fara yfir rekstraráhættuna og flækjustigið og eins líka fjárfestingaráhrifin, því það er jafnframt áhyggjuefni að frumvarpið byggist á því að bílaleigur og stórir og litlir aðilar verði í reynd innheimtuaðilar ríkisins, sem er í rauninni tiltölulega nýtt hlutverk fyrir þessa aðila, flókið hlutverk og kostnaðarsamt líka. Bílaleigurnar munu þurfa að uppfæra tölvukerfi og munu þurfa að umturna skráningarkerfunum sínum og breyta bókhaldsferlum og hugsanlega taka á sig vinnu sem ríkið hefur áður sinnt við dælu en áfram verður þeim gert það samt sem áður að greiða ríkissjóði þó svo að ekki liggi fyrir að gjaldið náist inn hjá leigutaka. Áætlaður rekstrarkostnaður bílaleiga vegna breytinganna nemur um 1,5 milljörðum kr. á næsta ári. Það þýðir að hagnaður næsta árs gufar upp. Fyrirtæki í kjarnastarfsemi ferðaþjónustunnar verða því líklega rekin með tapi og við höfum þegar heyrt fréttir af fækkun þjónustustöðva á landsbyggðinni einmitt vegna þessa frumvarps.
Því vil ég brýna okkur hér til að hugsa okkur vel um hérna áður en við setjum í rauninni ferðaþjónustuna, sem er burðarásinn í einni af okkar helstu atvinnugreinum um land allt, í þessa stöðu, hvort við viljum ekki aðeins staldra við hér og reyna að mæta þeim með einhverjum hætti. Þær eru að koma með tillögur að lausnum, nokkuð sanngjörnum lausnum, og ég held að það sé alla vega ferðarinnar virði að gera tilraun til þess að reyna að mæta þeim með einhverjum hætti af því að það er alveg rétt að við viljum öll sjá betri og öruggari vegi. Við viljum sjá fjárfestingu um allt land. Við viljum sjá framkvæmdir á vegum um allt land. Við viljum sjá fleiri göng. Við viljum sjá öflugar hafnir og öfluga flugvelli, gáttir inn í landið. Við viljum í rauninni óslitið framkvæmdaflæði.
En ef við horfum aðeins á tölurnar í fjárlögunum og hvaða sögu þær segja okkur þá er gert ráð fyrir því að skattlagning í kringum veiðigjöldin skili ríkissjóði um 7,5 milljörðum sem við höfum heyrt forsvarsaðila ríkisstjórnarinnar segja að séu ætlaðir í vegi og séu til þess að byggja upp vegi á landsbyggðinni. Við erum að sjá aukna vörutolla, 7,5 milljarða, sem er líka sagt að muni skila sér í framkvæmdir á vegum. Svo tökum við kílómetragjaldið, 3,3 milljarða, það er sagt eiga að fara í vegi. Samt er fjárfesting í vegum aðeins að aukast um 7,5 milljarða, ekki 18,3. Það er þetta sem fær mann eðlilega til þess að hugsa að skattar sem eru „markaðir“, við vitum að fjármagn er ekki eyrnamerkt, fara ekki allir í það sem sagt er og þjóðin sér alveg í gegnum þetta því hún upplifir þetta á hverjum degi.
Frú forseti. Það er líka annað varðandi þetta kílómetragjald því að ef við höldum því óbreyttu myndi maður ætla að ríkið fengi þá í rauninni í ríkissjóð sömu upphæð en svo er alls ekki. Það er gert ráð fyrir 3,3 milljörðum í aukningu skatta í kringum þetta mál þannig að það er verið að hækka upphæðirnar í málinu.
Frú forseti. Það er fjöldi annarra aðila sem hefur bent líka á misræmi og kannski ósanngirni að þeirra mati í frumvarpinu. Fornbílar sem eru lítið notaðir og valda engum umtalsverðum vegakostnaði greiða full gjöld. Það er ekki verið að taka tillit til þeirra. Mótorhjól greiða gjöld sem eru óeðlilega há miðað við þyngd og eyðslu og aðilar í ferðaþjónustu sem nota vélsleða, fjórhjól eða sexhjól til atvinnu eru ekki inni í undanþágu landbúnaðar þrátt fyrir sama tæknilega eðli. Það eru auðvitað vissir þættir sem er verið að taka tillit til hér og breyting á milli umræðna sem ég fagna mjög og er mjög jákvætt skref. Það er samt ljóst að það þarf aðeins meiri vinnu í þetta. Þau atriði sem hafa verið leiðrétt hér á síðustu dögum eru vissulega vel þegin en þau sýna líka í rauninni að málið hefði þurft betri undirbúning.
En það er einmitt verið að vara líka við því varðandi ferðaþjónustuna, svo ég haldi aðeins áfram að ræða hana, að breytingin muni jafnvel valda breytingu á hegðun ferðamanna, að þetta gæti orðið til þess að ferðamenn sem leigja bíla keyri styttri leiðir, fari jafnvel ekki út á landsbyggðina, leigi bíla í færri daga og forðist ferðir út á land. Það hefur auðvitað áhrif. Það er áhrifakeðja sem fer af stað. Þetta hefur áhrif á það að starfsemi á landsbyggðinni og ferðaþjónustan veikist enn frekar. Nóttum á hótelum fækkar, veitingahús missa þá viðskiptavini og afþreyingardögum fækkar. Þetta er í rauninni breyting sem getur unnið gegn markmiðum okkar allra, og m.a. ferðamálastefnu sem var samþykkt hér samhljóða á síðasta kjörtímabili, að ferðamenn ferðist um landið allt og að við náum að dreifa álaginu betur um allt land.
Frú forseti. Það er eðlilegt að spyrja: Hvað vill þá stjórnarandstaðan? Hvað vill Framsókn í þessu máli? Ja, frú forseti, það er auðvitað eðlilegt að það sé réttlát gjaldtaka af notkun vega hér á landi. Við viljum fjármagna vegina en við viljum líka gera það almennilega. En það þýðir að það er afar mikilvægt að við forðumst afturvirka skattlagningu og að við tryggjum rekstraröryggi fyrirtækja sem skapa störf og verðmæti um land allt, að við nýtum fordæmi í frumvarpinu sjálfu til að veita stórnotendum eðlilegan aðlögunartíma, eins og þeir hafa kallað eftir, og að við verndum landsbyggðina gegn auknum flutningskostnaði en ekki síður að við eflum traust á því að nýir skattar fari þá þangað sem þeim er ætlað.
Frú forseti. Það er afar mikilvægt að við gerum þetta rétt og það er líka mikilvægt að við gerum þetta vel. En þá er afar mikilvægt að við tökum hvert skref af ábyrgð og forðumst ákvarðanir sem geta valdið skaða og verða ekki bættar. Þess vegna tel ég í rauninni óhjákvæmilegt að við annaðhvort frestum gildistöku til 1. janúar 2027 og notum árið 2026 til að laga kerfið, aðlaga það, eiga samtal við ferðaþjónustuaðila, bílaleigur og fleiri til þess að allir séu undirbúnir fyrir þetta þegar að því kemur, eða þá tökum upp þessa hlutfallslegu innleiðingu fyrir bílaleigur samhliða þeirri sem þegar er sett fyrir hópbifreiðar, eins og þær hafa kallað eftir. Í rauninni held ég að það sé kannski aðeins hófstilltara og þetta eru framkvæmanlegar leiðir til þess að tryggja okkur að markmiðin náist án þess að valda óþarfatjóni.
Ég held að það sé afar mikilvægt að við hugsum um atvinnulífið í landinu og landsbyggðina alla. Hér er verið að vinna að atvinnustefnu og ég held að þetta sé einmitt eitt af því sem á vel heima þar inni, hvernig við hugum að ferðaþjónustunni og hvernig við viljum vaxa út úr þessari stöðu sem við sjáum í dag þegar við horfum á að hagvöxtur er að lækka. Það var gert ráð fyrir 2,5% á næsta ári. Við sjáum að nýjasta spá Seðlabankans er 0,9% sem hefur þau áhrif að ríkissjóður verður af verulegum tekjum á næsta ári. Ef við ætlum raunverulega að vera hér með verðmætasköpun í landinu þá þurfum við að styðja þær atvinnugreinar sem einmitt hafa verið að fjárfesta, eins og ferðaþjónustuna.
Ég ætla að láta þetta nægja í bili og bind vonir við að hv. efnahags- og viðskiptanefnd taki þetta mál til skoðunar og verði þá kannski reiðubúin að mæta þessum óskum ferðaþjónustunnar.