kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð. Það var ýmislegt sem þar kom fram og þar á meðal einn punktur er varðaði akstursíþróttir sem ég áttaði mig á þegar ég hlustaði að ég hafði gleymt að svara þegar hv. þingmaður var í andsvari við mig áðan þannig að það er best að ég svari því bara núna. Ég tel að það hafi verið gönuhlaup hjá þeim sem smíðuðu þetta frumvarp að hafa það inni, jafnvel þó að það hafi verið lækkað þarna um einhver 10%, því þetta mun auðvitað fyrst og fremst bitna á ungu fólki.
Síðan velti ég fyrir mér hversu sannfærandi það er að þetta mál þoli enga bið. Hér er útgjaldaaukning upp á einhverja 143 milljarða. Þetta frumvarp á að skila 3,3 milljörðum. Hversu sannfærandi er að það hafi ekki verið hægt að spara einhvers staðar í ríkiskerfinu sem nam þessari upphæð svo hægt væri að bíða með þetta á meðan við fyndum út úr því með hvaða hætti við viljum hafa gjaldtöku ökutækja til framtíðar?
Síðan langar mig aðeins að koma að því sem ég nefndi sjálfur í ræðu hérna áðan og langar að vita um hug hv. þm. Ingibjargar Isaksen hvað það varðar. Það er sú staðreynd að á fyrsta ári er þetta frumvarp afturvirkt í skattahækkun. Það er búið að selja þessar ferðir eða öllu heldur leigja þessa bíla marga hverja langt fram á næsta ár. Þykir hv. þingmanni það til eftirbreytni af ríkisstjórninni að ætla að setja afturvirka skatta?