157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:18]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er akkúrat það sem fram kom í svari hv. þingmanns sem er að fara að gerast. Það er að birtast þessum fyrirtækjum forsendubrestur í þeim leigusamningum sem þau hafa nú þegar gert. Þessi tenging í orðræðunni við fyrri mistök er varðar skemmtiferðaskipin finnst þeim sem hér stendur að ætti að vera nóg aðvörun fyrir þá sem vilja keyra þetta mál í gegn, um að flýta sér hægt.

Mig langar svo aðeins, frú forseti, að koma inn á hlut sem ég svo sem átta mig ekkert á fyrir fram hversu mikið hv. þingmaður hefur sett sig inn í, ég fæ þá bara að vita það, en það er þessi kvöð sem skrifuð er inn í frumvarpið á eiganda ökutækis að fylgjast með og bera ábyrgð á því að teljarinn í bílnum sé réttur. Ég minni á að það þarf ekkert rosalega stórar breytingar t.d. á dekkjum undir bílnum til að hafa áhrif á talninguna. Í þessu samhengi má nefna, af því að ég horfi hér á hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson, sem starfaði lengi sem lögreglumaður, að meira að segja þegar lögreglan hefur afskipti af okkur vegna hraðaksturs til að mynda þá er tekið sjálfkrafa tillit til þess að það sé skekkja, þ.e. það kemur til lækkunar á sektargreiðslunni. Það er bara fyrir fram talið að það geti verið skekkja. En í þessu frumvarpi er ekki gert ráð fyrir því heldur er ábyrgðin öll sett á eiganda bílsins. Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Telur hún að hinn almenni ökutækjaeigandi í landinu hafi góðar forsendur til að leggja mat á það hvort mælirinn í ökutæki viðkomandi sé að telja rétt?