kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa tæknilegu spurningu. Það sem ég velti fyrir mér varðandi þetta mál hér er hvort það sé verið að byggja á forsendum fyrra máls varðandi rafmagnsbílana og það sama gangi yfir rafmagnsbíla og dísil- og bensínbíla. En ég hef líka heyrt það varðandi þessa mæla að það þurfi að vera löglegir mælar og fleira í þeim dúr sem er ekki alls staðar í öllum ökutækjum. En þetta tengist líka bara stóru myndinni, hvernig við viljum nálgast þetta mál og varðandi ábyrgð hvers og eins. Þetta tengist líka því að við bindum vonir við að bensínlítrinn og dísillítrinn eigi að lækka um 100 kr. við þessa breytingu, að mér skilst. En það er í rauninni ekkert sem hamlar því að olíufélögin muni ekki bara hækka smátt og smátt verðið á dísil- og bensínlítranum. Það er í rauninni neytandinn sjálfur sem þarf að halda utan um það og örugglega Neytendasamtökin sem ég vona að nái að sinna sínu hlutverki í þeim efnum. En þetta er eitthvað sem við höfum verulegar áhyggjur af, að verðið muni hækka smátt og smátt og olíufélögin leiði þetta út í bensínverðið og eftir sitji eigandinn með þessa kvöð, að láta lesa af mælinum, og sé jafnvel að borga enn hærra verð fyrir bensín og dísil.