157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:22]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að andmæla þessum tímaferðalögum stjórnarandstöðunnar sem áttu sér stað í seinustu andsvörum. Ef við setjum á skatt sem tekur gildi 1. janúar, ef við gerum það núna í dag þá er það ekki afturvirkur skattur. (Gripið fram í: Takk. )Það er ekki afturvirkur skattur. Það er skattur sem tekur gildi með skömmum fyrirvara, það er alveg rétt, (Gripið fram í.)en það er ekki afturvirkt. Það gerist nú oft og ítrekað að fólk selur einhverjar vörur eða þjónustu og síðan breytast opinberu gjöldin sem á þeim eru, fólk getur oft lent í því. En það er ekki afturvirk breyting. Afturvirk breyting væri ef við værum að breyta sköttum og gjöldum á vöru sem þegar hefur verið (Gripið fram í: Seld. )seld í dag og fengið greitt og þjónustan var veitt. Þetta myndi á engu lögfræðiprófi kallast afturvirkur skattur, svo það sé sagt.

Mig langar síðan að nefna tvennt við hv. þingmann sem flutti hérna ágætisræðu. Annars vegar varðandi þjónustuna við ferðaþjónustuna. Ég vil nefna að það hefur verið komið til móts við ábendingar bílaleigna á margan hátt, t.d. með því að koma þessu daggjaldi inn í kerfið sem var ekki komið á þegar litla kílómetragjaldið var sett á fyrir rafmagnsbíla. Þetta er svona til þess að koma til móts við þeirra viðskiptamódel. Síðan var lágmarksleigutími í daggjaldakerfinu styttur úr 30 dögum í 15 í meðförum nefndarinnar núna. Margar af bílaleigunum hafa óskað eftir því að fá einhvern afslátt af gjaldinu fyrsta árið. Þar er auðvitað eitthvað sem er hægt að skoða en ég vil samt benda á að tölurnar þarna myndu örugglega hlaupa á hundruðum milljóna eða milljörðum, ef við færum í þannig reikning, af því þetta eru bara mjög miklar upphæðir sem þarna eru undir ef við ætlum að veita öllum bílaleigum í landinu 30% afslátt af kílómetragjaldi.

Þá vil ég spyrja hvort þingmanninum finnist það rétt, ef við myndum bera þetta saman við kerfið sem við erum með í dag þar sem fólk borgar bara bensín á dælu, hvort það sé ekki rétt til lengdar að ferðamenn greiði sama fyrir notkun vegakerfisins og Íslendingar. Ef við værum t.d. með kerfi þar sem væri dæla þar sem stæði bensín fyrir Íslendinga og svo væri ferðamannabensín sem væri ódýrara — við værum öll sammála um að það væri svolítið ósanngjarnt kerfi og að það myndi kannski ekki verða til vinsælda í landinu að hafa það þannig, er það nokkuð?