157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:24]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og einnig fyrir skýringuna á þessu með afturvirknina. Það er mikilvægt að hafa þetta algjörlega á hreinu og ég þakka honum fyrir þessar skýringar. Hins vegar er það þannig að þó að þetta sé ekki afturvirkt fyrir árið 2025 þá hefur það áhrif á 2026 fyrir einmitt þjónustu sem búið er að selja út frá öðrum forsendum heldur en gerist eftir breytingar á þessu frumvarpi.

Varðandi ferðaþjónustuna og það að mæta þeirra óskum þá finnst mér ósköp eðlilegt þegar áhyggjurnar eru svona miklar að það sé hlustað á ferðaþjónustuna. Ef þetta frumvarp frestast um ár, gildistöku þess, eða það verður tekið tillit til þeirra þá mun bensínverðið — útlendingar borga alveg sama bensínverð á dælunni og Íslendingar. Það er hins vegar verið að leggja hérna á auknar kröfur, auknar álögur, því að ef það verður óbreytt þá skila þessir 3,3 milljarðar sér ekki inn í kerfið. En nú er verið að leggja til breytingar og hækkanir annars staðar í kerfinu sem verða til þess að ríkissjóður fær 3,3 milljarða aukalega inn í kerfið. Og það á ekki endilega bara við um ferðaþjónustu. Það á við um alla landsmenn.