kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum kærlega fyrir hennar svar. Mín skoðun er alla vega til lengdar, sama hver aðlögunarferillinn er, að erlendir ferðamenn eigi að borga sama gjald til vegakerfisins og þeir Íslendingar sem það nota. Annað fyndist mér ankannalegt og ég held að það myndi aðeins grafa undan þeirri sátt sem ríkir um ferðaþjónustuna að við kæmum á einhverju varanlegu tvöföldu kerfi þar sem bílaleigur og ferðamenn geta fengið afslátt af kílómetragjaldi.
Hins vegar langar mig aðeins að ræða við þingmanninn um áhyggjur af flutningskostnaði sem hún nefndi. Þetta er eitthvað, svo ég bara upplýsi þingmenn, sem hefur verið skoðað og rýnt. Við tókum dæmi um meðalstóra vagnlest og ákváðum meðaleyðslu og þá eru árin þannig: Á næsta ári mun kostnaðurinn lækka um 0,9%. Hann mun svo að ég held hækka, eða hann mun vera í kringum 0,2% en ég man ekki alveg í hvora áttina, sem sagt verða nánast eins árið 2027. Árið þar á eftir er gert ráð fyrir 1% hækkun á kostnaði við flutningskostnað út af þessu. Þetta eru stærðargráðurnar, bara svo við höfum það á hreinu, vegna þess að hér er talað eins og það verði einhver slík breyting að hún muni varanlega skekkja samkeppnisstöðu. Nú geri ég ekki lítið úr því að 1% er 1% en við skulum samt ekki tala eins og þetta séu 20, 30%, því það er ekki þannig. Við erum að tala um lækkun á næsta ári, enga breytingu á árinu þar á eftir og síðan 1% hækkun á flutningskostnaði árið þar á eftir, og eins og ég segi eru endurskoðunarákvæði í frumvarpinu þannig að hagsmunaðilum gefst færi á því að koma sínum sjónarmiðum á framfæri þegar lögin eru endurskoðuð eftir eitt til tvö ár.