kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég þakka fyrir tækifærið til að fá að svara hv. þingmanni í andsvari. Bara til að það sé alveg á tæru og því sé skýrt svarað þá er enginn að tala fyrir tvöföldu kerfi. Það er bara verið að tala fyrir því að mæta áhyggjum ferðaþjónustuaðila sem hafa kallað eftir því að fá tíma til að mæta þessum breyttu kröfum og þessu breytta kerfi sem er verið að leggja til.
Varðandi flutningsjöfnunina þá þarf að hækka verulega þar. Ég átti ágætissamtal við hæstv. ráðherra, og hvet þá sem hafa áhuga á að kynna sér það samtal sem við áttum þegar var verið að tala um flutningsjöfnun í þinginu, og ráðherra tók mjög jákvætt í þetta og tók undir okkar áhyggjur varðandi að það þyrfti að bæta fjármagni inn til að mæta fyrirtækjum á landsbyggðinni sem eru að flytja sínar vörur hingað til lands. En þegar við horfum á heildina, því að það er eitt ef við horfum bara á kílómetragjaldið, þegar við erum að horfa á kílómetragjaldið og við erum að horfa á vörugjöldin og við erum að horfa á flutningsjöfnunina til samans þá hafa þessir þrír þættir alveg veruleg áhrif á landsbyggðina, ferðaþjónustuna og í rauninni bara atvinnusköpun um land allt. Það er það sem við erum að benda á líka, vegna þess að eitt lítið sakleysislegt mál getur kannski læðst hérna í gegn en þegar við berum þetta allt saman og áttum okkur á áhrifunum sem þetta hefur þá eru þau veruleg. Það er það sem ég er að tala um. Og jú, það er endurskoðun eftir eitt til tvö ár en þá er skaðinn skeður og það er það sem við erum að benda á hér. Eigum við ekki að staldra aðeins við? Ég veit að ferðaþjónustan er núna með ágætisfund á fimmtudaginn, að mér skilst, um skattspor ferðaþjónustunnar, hérna á fimmtudagsmorgun. Hlustum aðeins á þessar áhyggjur í stað þess að þurfa að leiðrétta og laga hlutina aftur eftir ár. Lærum aðeins af reynslunni. Það er það sem ég er að kalla eftir hér og ég bind vonir við að ég nái eyrum stjórnarþingmanna.