157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:30]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Við ræðum hér kílómetragjald á ökutæki, mál sem snertir líklega alla Íslendinga því að gjaldið er almennt; óháð umfangi, orku, tegund, fjölskyldugerð eða einhverju atvinnutengdu. Þetta er mál sem snertir í raun alla sem koma eitthvað að ökutækjum. Við þekkjum það að landið okkar er þannig að einhvers staðar þurfum við að ferðast á milli með vélknúnum ökutækjum og gjaldskrár geta hækkað þar þótt við eigum ekki tækin sjálf.

Ég ætla að beina sjónum mínum að ferðaþjónustunni vegna þess að ferðaþjónustan er lífæð margra minni fyrirtækja úti á landi. Vegirnir eru eins og æðar og bílaleigubílarnir eins og blóðið. Bílaleigubílarnir þurfa að geta flætt um allt vegna þess að útlendingar taka nánast alltaf bílaleigubíla og kílómetragjald mun hafa veruleg áhrif á bílaleigur. Bílaleigurnar hafa ítrekað talað um þetta gjald og rætt við valdhafa, farið um allt og rætt við bæði þingmenn og ríkisstjórn, skrifað greinar og sent inn umsagnir og skilað greinargerðum. En það er ekkert hlustað. Ég ætla að fara stuttlega yfir það sem ferðaþjónustan hefur verið að tala um. Gleymum því ekki að ferðaþjónustan er ein af grunnstoðum íslensks hagkerfis. Það skiptir máli hvernig ferðaþjónustunni gengur. Nýlegar tölur frá Hagstofunni birta svart á hvítu hver staðan hjá ferðaþjónustunni er. Afkoman hefur dregist saman um 56% og afkoman hefur dregist saman um tugi prósenta í nær öllum undirgreinum ferðaþjónustunnar. Það er 73% samdráttur hjá bílaleigum. En það eru akkúrat þær, auk almennings í landinu, sem lenda verst í þessu höggi ríkisstjórnarinnar. Og hvað ætlar ríkisstjórnin að gera með ferðaþjónustuna annað en að setja kílómetragjald á? Það er 67% hækkun vörugjalda, hækkun áfengisgjalda og fyrirhugað er náttúru- og innviðagjald. Þetta leggst allt ofan á, er viðbót við kílómetragjaldið. Það að leggja nýjar álögur á atvinnugrein sem er þegar undir mikilli pressu stríðir gegn heilbrigðri skynsemi. Það er ekkert sem bendir til þess að árið 2026 verði betra en 2025 eða 2024 þannig að hér erum við með atvinnugrein sem er smátt og smátt að vindast ofan af og við erum að ná henni alveg inn að beini.

Svo ég haldi áfram með kílómetragjaldið þá verða áhrifin á þjóðarbúið að sjálfsögðu einhver, á ferðaþjónustuna, einstaka fyrirtæki og almenning. Ísland er í mikilli samkeppni við önnur ríki um norðurslóðaferðalög. Noregur er að sækja á okkur og við erum með Grænland og Finnland. Þetta eru ríki sem við erum í samkeppni við og það er eitthvað sem kallast samkeppnishæfni sem við þurfum að búa yfir til að ferðamenn velji það að koma hingað, ferðamenn sem eru tilbúnir til þess að koma með gjaldeyri til landsins þannig að við getum keypt erlenda vöru. Kílómetragjaldið mun draga úr samkeppnishæfni Íslands, ég held að það viðurkenni það allir, og Ísland verður síður valið sem komustaður ferðalanga.

Virðulegur forseti. Varðandi skatt sem dregur úr verðmætasköpun þá eru metin áhrif vegna kílómetragjaldsins á þjóðarbúið 3,3 milljarðar í aukinn viðskiptahalla, 2,7 milljarðar í minni verga landsframleiðslu og minni útflutningur upp á 4,1 milljarð. Þetta er skattur sem dregur úr landsframleiðslu. Við erum að tala um að það er verið að minnka þjóðarkökuna. Það er verið að minnka heildarskattsporið. Ef ríkisstjórnin ætlar að taka peninginn sem kemur fyrir kílómetragjaldið og setja í vegi eða bæta í eitthvað annað, eins og ég hef heyrt hér í pontu hjá þingmönnum meiri hlutans, er það tómt mál að tala um þegar það er verið að minnka kökuna og minnka skatttekjur, heildarskatttekjur. Það eru skatttekjurnar okkar sem fara í samneysluna, þar á meðal vegina. Það þarf reyndar ekki að koma á óvart að þessar skattahækkanir komi frá ríkisstjórninni því að það virðist vera stefna hennar að draga úr landsframleiðslu. Og svo ég segi það bara aftur: Hér er verið að minnka þjóðarkökuna, fækka sneiðunum eða minnka þær.

Þessi skattur mun bitna sérstaklega á útflutningsgreinum. Hvers vegna skipta útflutningsgreinar máli? Jú, vegna þess að þær skapa gjaldeyri. Þær skapa tekjur fyrir okkur í erlendri mynt þannig að við getum keypt olíu, matvöru, lyf og annað slíkt sem við framleiðum ekki sjálf innan lands. Ísland er eyja og bílaleigumarkaður hérlendis er annars konar en í flestum öðrum ríkjum. Um 70% þeirra sem leigja ökutæki hérlendis eru erlendir ferðamenn, 70% samanborið við 20% annars staðar. Það eru margfalt fleiri erlendir ferðamenn sem nota þetta blóð eða þessa lífæð ferðaþjónustunnar til að ferðast um land allt, 70% ferðamanna hér en um 20% að meðaltali annars staðar. Þetta þýðir einfaldlega að bílaleigurnar eru nauðsynlegar fyrir innviði ferðaþjónustunnar, til að flytja ferðamenn um land allt. Það skiptir máli að þeir fari um land allt, sé ekki bara þjappað saman hér á suðvesturhorninu og í kringum Reykjanesið. Kílómetragjaldið kemur til með að letja ferðamenn að fara um landið og almennt að koma til landsins þar sem þarfasti þjónninn er orðinn dýr útgjaldaliður í ferðalaginu. Og hvers vegna skyldi það letja ferðamenn að fara lengri vegalengdir á bílunum? Jú, vegna þess að það er komið kílómetragjald sem telur þá hraðar inn. Verð bílaleigubíla mun hækka um 12–17%. Við erum að senda skýr skilaboð til þeirra sem ætla að ferðast um Ísland og fæstir ferðamenn ferðast á hjólum eða húkka sér far, flestir eru á bílaleigubílum. Ísland er orðið dýrara. Það eru skilaboðin. Skoðið aðra markaði; Finnland, Noreg, Grænland, Kanada.

Hvernig getur Alþingi réttlætt það að hækka kostnað á ferðaþjónustunnar í þessu ástandi sem ríkir í dag? Fyrirvarinn er gott sem enginn og fyrirsjáanleiki í skattahækkunum ríkisstjórnarinnar hefur verið afar takmarkaður. Það er óboðleg staða fyrir atvinnulífið að verið sé að skella á skatti þegar búið er að selja ferðir fyrir fram.

Það virðist vera svo að ríkisstjórnin vilji með handafli þvinga ferðamenn til að velja rafmagnsbílaleigubíla. Komið með okkur í vegferð, segir ríkisstjórnin við bílaleigurnar. Bílaleigurnar geta alveg sagt já við því. Við skulum koma með ykkur í vegferðina. En það eru ferðamennirnir sem velja sér bíla á bílaleigunum og það er ekki hægt að þvinga þá til að taka rafmagnsbíla. Og staðan er þannig að ferðamenn velja mun frekar bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti, ekki rafmagnsbíla. Innviðir hér á landi eru ekki orðnir nógu góðir til þess að menn treysti sér til þess, ekki einu sinni Íslendingar sem eru þokkalega vanir rafmagnsbílum og rafmagnsbílavæðingu. Fæstar þjóðir eru komnar eins langt og Íslendingar í að nota rafmagnsbíla, fæstar. Hleðslukvíði, óvissa vegna fjarlægða og annað spilar þarna inn í þannig að það verður ekki hægt að þvinga erlenda ferðamenn til að leigja rafmagnsbíla. Bílaleigurnar hafa nú þegar reynt þetta. Ef ríkisstjórnin hefði nú hlustað á talsmenn bílaleignanna þá vissi hún að staðan er sú að þær hafa reynt að ýta ferðamönnum yfir í rafmagnsbíla en þeir bílar leigjast miklu, miklu síður vegna þeirra ástæðna sem ég rakti hér áðan í máli mínu. Bílaleigurnar hafa setið uppi með flotta rafmagnsbíla sem enginn vill leigja vegna þess að það samfélag ferðamanna sem kemur hingað er ekki tilbúið til að leigja rafmagnsbíla. Þess vegna hefur ferðaþjónustan óskað eftir tíma til að reyna að ná einhverri aðlögun, ræða við og senda út skilaboð til ferðamanna um að hér sé breytt staða, að hér sé ríkisstjórn sem hyggist skattleggja bílaleigubílana með kílómetragjaldi og þá sé í raun betra að taka rafmagnsbíla. Mögulega gengur það eftir einhver ár en það gerir það ekki 1. janúar 2026. Það er í raun hrein vanvirðing við ferðaþjónustuna sem atvinnugrein að gera þetta svona og þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta er gert. Það myndi enginn sem rekur fyrirtæki sætta sig við að fá á sig nánast fyrirvaralausa skattlagningu sem má hártoga hvort sé afturvirk eða ekki. Hún kemur alla vega með gríðarlega skömmum fyrirvara og virkar á verð sem þegar er búið að setja út og ég held að það skilji það allir og líka ríkisstjórnarmeirihlutinn og ég veit það, það er ekki bara að ég haldi það.

Kílómetragjaldið er líka enn ein aðför að landsbyggðinni sem má finna í þeim skattafrumvörpum sem dunið hafa á þinginu. Við þekkjum það öll sem höfum búið hér á landi í fleiri en tíu ár að ferðaþjónustan hefur reynt að draga úr árstíðasveiflum þannig að það komi ekki allir bara á einhverjum fjórum, fimm mánuðum yfir sumarið heldur dreifist álagið yfir landið allt, reynt að dreifa ferðamönnum um land allt þannig að tekjur af þeim komi ekki allar hér á suðvesturhorninu heldur fari ferðamenn víðar. Kílómetragjaldið dregur úr þessu tvennu; skemmir fyrir minnkandi árstíðasveiflum og skemmir fyrir því að ferðamenn fari víðar um landið. Ég held að það sjái það allir í hendi sér sem eru að hlusta að ef það kostar meira að fara um landið þá spara menn það og fara mögulega styttra og þá verður höfuðborgin einhvers konar miðpunktur fyrir ferðamenn. Þetta er skaðlegt fyrir þjóðarbúið og er í raun öfug byggðastefna. En það kemur kannski ekki á óvart, eins og ég segi aftur, með tilliti til þess hvaða mál flokkarnir sem eru við völd núna hafa komið með.

Við megum ekki gleyma því að við verðum að skoða heildarmyndina. Hverjar verða skatttekjur ríkisins eftir aðgerðina og hverjar voru þær fyrir aðgerðina? Það er auðvelt að setja skatta, sértækan skatt til að innheimta eitthvað og tala um að hér innheimtist 10–20 milljónir, 40 milljónir eða 40 milljarðar. Þú verður að skoða heildarmyndina og það er alveg ljóst að heildarskattspor ferðaþjónustunnar og landsins alls verður minna ef þetta frumvarp verður að lögum. Bílaleigur hafa haft um 2 milljarða hagnað að meðaltali á ári og það er talið að innheimtukostnaður þessa kílómetragjalds geti verið allt að 1,5 milljarðar þannig að hér er hagnaðurinn bara þurrkaður upp einn, tveir og þrír. Það hefur komið fram í máli annarra þingmanna að mögulega verði einhverjar bílaleigur gjaldþrota og þá fækkar þeim náttúrlega og verður minni samkeppni. Það verður mögulega stærðarhagræðing sem er kannski eitthvað sem ríkisstjórninni hugnast, eins og í veiðigjaldamálinu.

En þessi skattur býr til flækjur og stjórnsýslukostnað. Við erum að færa okkur úr frekar einföldu kerfi, bensín- og olíugjöldum við dæluna, yfir í kerfi sem krefst þess að ríkið búi til einhverja stofnun, verði með eitthvert kerfi til að innheimta gjaldið. Kerfið er bæði dýrt og flókið. Góð skattheimta á að vera einföld, ekki kostnaðarsöm flækja þar sem þarf kostnaðarsamt bákn til að innheimta. Svo megum við ekki gleyma því að bílaleigur og ferðaþjónustan hafa gert langtímasamninga langt inn í næsta ár, sýnt ákveðna fyrirhyggju eins og við köllum eftir frekar í lundarfari Íslendinga, að menn sýni fyrirhyggju. Og fyrir vikið, fyrir að hafa sýnt fyrirhyggju, fá þær það í bakið með skatti sem birtist eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Ekki hækka bílaleigurnar eða ferðaþjónustan gjöldin eftir á. Þetta tengist líka almennri ferðaþjónustu þar sem menn nota rútur og stærri bíla og þetta mun leggjast á allt.

Við megum ekki gleyma því hvernig ferðaþjónustan er. Það er gisting hingað og þangað um landið, í litlum dölum, það er veitingasala hér og þar og allt hríslast þetta síðan út í samfélagið, nærsamfélagið. Það eru iðnaðarmenn sem þurfa að endurnýja eitthvað í húsunum, rafvirkjar, hitt og þetta. Það þarf að þrífa, það þarf að búa til mat. Ferðaþjónustan er ákveðin smálífæð, eins og háræðar íslensks atvinnulífs, þetta hríslast um allt land þannig að þetta er líka gott fyrir byggðastefnu. Hlutverk löggjafans er að styðja byggð, útflutning og orkuskipti og það er alveg ljóst að kílómetragjaldið mun draga úr dreifingu ferðamanna, minnka útflutningstekjur og ekki verður hvati til orkuskipta vegna þess að þjónustan og innviðirnir eru ekki orðnir nógu traustir. Íslenskir ferðamenn eru ólíklegri til að fara á rafmagnsbílum sínum út á land heldur en bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti vegna þess að þeir þekkja það af reynslunni að það eru of fáar hleðslustöðvar hingað og þangað um landið eða of langt á milli þeirra. Það er ekkert verra heldur en að eiga 150 km í næstu hleðslustöð og sjá 90 km á tanknum. Þú mætir ekki með rafhlöðu úr Bónus til að setja á bílinn einhvers staðar fastur uppi á heiðum. Þetta er bara raunstaðan. Við erum ekki með nógu sterka innviði til þess að maður geti óhikað farið á rafmagnsbíl t.d. til Ísafjarðar. (Gripið fram í.) Hér heyrist úr sal „mjög auðvelt“. Það getur verið það fyrir hv. þingmann sem segir það enda fæddur og uppalinn líklegast á Ísafirði. En ef sami hv. þingmaður væri í Frakklandi og þyrfti að ferðast þar sem hann þekkti ekki neitt til einhverja 500, 600, 700 km þá held ég að hann væri ekki alveg eins viss í sínu með það og myndi líklegast, ef hann er alveg heiðarlegur hér í pontu á eftir, leigja sér jarðefnaeldsneytisbíl erlendis. Það væri gaman að sjá heiðarlegt svar frá þingmanninum og ég myndi virði hann fyrir það heiðarlega svar.

Ég sé að tíminn styttist óneitanlega hjá mér. Mig langar að ljúka þessu á því að við erum með börn í íþróttum hingað og þangað um landið og á höfuðborgarsvæðinu sem þurfa að ferðast og sjálfur hef ég nú verið fararstjóri í ótal slíkum ferðum og þetta mun hafa áhrif á þær ferðir. Það mun verða dýrara að fara um landið. Þá er líklegra að börn í einhverjum landsfjórðungi keppi frekar innbyrðis í stað þess að fara lengri vegalengdir. Ég tel það ekki til bóta, t.d. að höfuðborgarsvæðið haldi meira utan um sig og sína og sjái síður hinar dreifðari byggðir landsins, hvað þá Egilsstaði, Ísafjörð eða Höfn sem langt er að keyra til. Hér er ég ekki að segja að þessar íþróttir muni hrynja og er heldur ekki að segja að það muni allt fara í voða ef þetta frumvarp verður að lögum. En hér eru stigin skref sem minnka heildarþjóðarkökuna. Það eru alltaf vond skref. Það er minna fé sem fer í samneysluna og það er minni hvati fyrir fólk að gera vel. En ég læt þessu lokið að sinni og kem kannski seinna í ræðu aftur.