157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:50]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir fína ræðu og vil sérstaklega taka upp við hann samkeppnishæfni þjóðarinnar, mér fannst það góður punktur hjá honum. En það sem ég myndi vilja ræða við hann og biðja hann að skoða er samkeppni út frá aðeins breiðari línum heldur en hann er að gera. Ég hef nú talsvert rannsakað samkeppnishæfni vestfirskra sjávarútvegsfyrirtækja og eitt af því sem þau nefna í þeirri rannsókn sem ég gerði árið 2020 er að það mikilvægasta sem væri hægt að gera til að auka samkeppnishæfni þeirra væri að vera á betri vegum; stærri, breiðari og öruggari vegum. Það er akkúrat það sem ríkisstjórnin er að gera. Hún er að auka tekjur sínar af umferð svo hægt sé að fara í að bæta vegi og innviði þessa lands.

Fyrsta spurningin er kannski: Er hv. þm. Jón Pétur Zimsen ekki sammála mér í því að öruggir innviðir, þar með talið vegakerfið, séu forsenda samkeppnishæfni þjóðarinnar og það sé mikilvægt fyrir okkur að standa vörð um þessa fjárfestingu okkar og reyna að hætta að láta hana molna niður eins og hún hefur gert núna síðustu árin? Þetta er náttúrlega ekki boðlegt ástand. Eitthvað verðum við að gera, einhvers staðar verðum við að sækja peninga. Ef ekki af umferðinni, hvar þá? Ég vil biðja þingmanninn um að skoða það. Það væri líka gaman fyrir mig að taka hann í rafbílaferðalag vestur á Ísafjörð eins og hann nefndi svo sannarlega í sinni ræðu. Það sem hefur gerst, og það kemur kannski mörgum þingmönnum á óvart, er að hefur orðið ótrúlega mikil uppbygging á rafhleðslustöðum. Getum við gert betur? Já, en þú kemst auðveldlega á Ísafjörð, Akureyri og Egilsstaði. Þú þarft kannski aðeins að plana fram í tímann eins og þingmaðurinn nefnir. Það þarf kannski að upplýsa og uppfræða ferðamenn um það á hvaða vegferð þeir eru. Það eru ákveðin verkefni fyrir höndum sem við eigum þar. En það þarf auðvitað að bæta í hvað varðar innviðina og gististaðir þurfa kannski líka að hugsa um þetta. Mig langar að biðja hann að hugleiða þetta með samkeppnishæfnina með mér.