157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:52]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir gott andsvar, virkilega gott. Ég minni hana samt á spurninguna um hvort hv. þingmaður myndi taka rafbíl og fara frá Toulouse til München, einn, tveir og þrír, eða jarðefnaeldsneytisbíl. Jú, samkeppnishæfni og góðar samgöngur skipta gríðarlega miklu máli, við hv. þingmaður erum algerlega sammála um það. En það sem hv. þingmaður einhvern veginn áttaði sig ekki á er að þegar við erum með stóra köku og stórt skattspor þá er miklu auðveldara að laga vegina í stað þess að vera með sértæka skatta þar sem er tekið einhvers konar gjald, eins og kílómetragjaldið, og ætla að nota þá í vegina. Þegar við minnkum skattsporið er ólíklegra að við getum komið inn í samneysluna, hvort sem það eru vegir, heilbrigðisþjónusta, menntun eða löggæsla. Hér er bara í rauninni alger pólitískur munur, hér sér fólk mismunandi pólitískar skoðanir hjá hv. þingmanni og þeim sem hér stendur. Ég vil stækka kökuna svo það sé hægt að byggja vegi um allt land, efla heilbrigðisþjónustuna, löggæsluna og menntakerfið, en hv. þingmaður sér ekki lengra heldur en — ég vil kannski ekki leggja honum þessi orð í munn, að hv. þingmaður sjái ekki lengra, en hv. þingmaður er tilbúinn í sértæka skattheimtu fyrir bara vegina. Ég vil horfa á heildarmyndina. Ég vil bæta alla samneysluna. Ég er sammála því að hluti af samkeppnishæfninni er auðvitað vegakerfið og samgöngur, þetta skiptir miklu máli. En það væri gaman ef hv. þingmaðurinn hefði tíma til að svara því hvort hann tæki jarðefnaeldsneytisbíl eða rafmagnsbíl í ókunnu landi þar sem hann þekkti ekki alveg til.