157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[18:54]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er bara strax komin með þér í þetta ferðalag til Evrópu. Ég myndi sennilega alltaf velja lestirnar en gott og vel. En ef ég myndi taka rafbíl, sem ég myndi alveg treysta mér til að gera, þá myndi ég að sjálfsögðu skoða hvar væri að finna rafbílastöðvar. Ég skil alveg þessar hugleiðingar hans um skattheimtu en mátti ég skilja af orðum þingmannsins að — jú, ég heyri að hann er mótfallinn kílómetragjaldinu og telur það vera skattahækkun, eins og ég skil hans orð, en ég vil þá spyrja hann: Ef hann er ekki til í að taka upp þetta kílómetragjaldskerfi hefur hann einhverjar aðrar hugmyndir um hvaða kerfi væri gott að hafa í staðinn? Sér hann einhverjar hugmyndir í því? Svo talar hann um að núverandi fyrirkomulag væri miklu einfaldara. Ég myndi telja að það væri líka hægt að færa fyrir því rök að ef allir bílar færu bara í kílómetragjaldið væri það ákveðin einföldun. Eins og er mjög algengt og maður sér þá eru kannski tveir bílar á heimilinu, annar er rafmagnsbíll og hinn er bensínbíll og þú þarft að vera í sitt hvoru kerfinu. Er ekki ákveðin einföldun í því ef það væri bara eitt kerfi fyrir alla bíla heimilisins? Ég held að það mætti færa fyrir því rök að það væri að einhverju leyti einfaldara. Það er líka ákveðin einföldun, myndi ég segja, að taka gjaldtöku ríkisins út úr eldsneytisverði. Þá er auðveldara að fylgjast með verðþróun eldsneytis. Er hann ekki sammála mér í því? Ég er kannski að leggja honum skoðanir í munn, hann leiðréttir það þá. Ég hefði líka viljað spyrja hann hvernig hann sér þetta sem aðför að landsbyggðinni. Ég náði ekki alveg að tengja við það sem landsbyggðarkona en það gefst kannski ekki tími í svona stuttu andsvari.