kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir gott seinna andsvar. Hv. þingmaður spyr hvað ég vilji að komi í staðinn fyrir kílómetragjald til að bæta vegina. Þetta sýnir, ég vil ekki segja hugsun allra vinstri manna, en það er einhvern veginn þannig að þeir átta sig ekki á því að ef menn hafa frelsi til athafna þá koma fleiri ferðamenn og við fáum meiri skatt af ferðamönnum í heildina. Það þarf ekki að leggja gjaldið á vegna þess að heildarskatttekjur ríkisins aukast. Þess vegna þarf ekki að leggja gjaldið á. Almennt eru skattar til þess fallnir að kreista súrefnið úr atvinnulífinu en ekki glæða bálin eins og físibelgurinn gerir. Það er í raun kannski munurinn á hugmyndafræðilegri pólitík vinstri og hægri; hægra fólk treystir atvinnulífinu betur fyrir eigin fjármunum, treystir því til að koma peningunum í vinnu þannig að fleiri fái vinnu, fleiri borgi skatta og meiri skatta. Fyrir vikið verður til meiri peningur í samneysluna. Það er bara einfalda pólitíkin í því. En svo var þingmaðurinn með fleiri spurningar en þar sem ég er búinn að einbeita mér svo mikið — getur þingmaðurinn aðeins rifjað upp fyrir mér? (ArnaJ: Landsbyggðarmálin t.d. og einfaldara kerfi.) Já, þú talar um einfaldara kerfi. Sjálfur á ég rafmagnsbíl og jarðefnaeldsneytisbíl. Ef báðir væru á kílómetragjaldi þá hljómar það einfaldara en tilgangurinn má ekki helga meðalið. Í þessu er það þannig, og við sjáum það bara í umsögnum, (Forseti hringir.) að þetta kemur til með að minnka heildarskattsporið. Það er aldrei til góðs að draga úr hagvexti og minnka heildarskatta.