kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Þetta var mjög áhugaverð ræða hjá hv. þingmanni og mér fannst þar birtast rauður þráður, eða það sem ég hef verið að skynja sem rauðan þráð, í stefnu þessarar ríkisstjórnar sem er sá að í skattaaðgerðum, ekki hvað síst, eru málin ekki hugsuð til enda. Það er bara fyrsta skrefið og svo hugsa menn ekkert lengra en það. Það mætti halda að nálgunin væri óskilvirkni í öllum málum. Hv. þingmaður segir, réttilega að mínu mati, að kílómetragjaldið muni draga úr samkeppnishæfni Íslands og að skattar eins og þessir dragi úr landsframleiðslu fremur en auki hana. Ég er sammála þessu. Þá varð mér hugsað til þess sem hv. þingmaður er sérfræðingur í og ég hef alltaf mikla unun af því að hlusta á hv. þingmann ræða sem eru menntamál. Ég fór að velta fyrir mér: Er ekki bara sama hugsun eða hugsunarleysi að birtast hér eins og í stefnu ríkisstjórnarinnar í menntamálum? Hún virðist vera til þess fallin að draga úr samkeppnishæfni Íslands og draga úr landsframleiðslu. Hv. þingmaður hefur meira að segja leitast við að reikna þetta dæmi og útskýra að þarna séu alvöru verðmæti undir, jafnvel þótt menn líti fram hjá mikilvægi þess fyrir hvern og einn einstakling að fá góða menntun. Það er líka spurning fyrir samfélagið um þann skaða og það efnahagslega tjón sem verður af því ef menntakerfið er ekki nógu vel rekið, ef það er ekki hugsað til enda hvernig við nálgumst það.
Spurning mín til hv. þingmanns er þess vegna þessi: Getur verið að við séum að sjá einhvern rauðan þráð birtast í stefnu þessarar nýlegu ríkisstjórnar þar sem málin eru ekki hugsuð til enda? Þau eru rædd og kynnt út frá umbúðunum, (Forseti hringir.) en ef menn skoða dæmið til enda þá draga þau úr samkeppnishæfni, landsframleiðslu, hvort sem við erum að ræða (Forseti hringir.) kílómetragjald eða stefnu í menntamálum.
(Forseti (EÁs): Forseti vill minna hv. þingmann á að ræðutími er tvær mínútur.)