157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[19:01]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir virkilega gott andsvar og falleg orð í garð þess er hér stendur. Ég get svo sannarlega verið sammála hv. þingmanni um það að meira og minna öll þau mál, sérstaklega skattamál, sem koma hér inn eru ekki hugsuð til enda. Alveg eins og ég talaði um í minni ræðu með þetta kílómetragjald þá er freistandi að geta reiknað út í excel einhvers konar niðurstöðu úr kílómetragjaldi og bókfært hana inn í eitthvert bókhald en hugsa ekki um heildarmyndina þegar landsframleiðsla minnkar fyrir vikið. Það sama á sér stað, því miður, í menntamálum. Framleiðslan sem kemur út úr menntakerfinu verður sífellt lakari og þá erum við að skaða hagvöxt og við erum að skaða framtíðartekjur þeirra sem stunda nám í skólanum. Samkvæmt OECD er talið að helmingur alls hagvaxtar sé vegna menntunar og að góð menntun, og þá er ég ekki að tala um skaðmenntun heldur góða menntun, í grunn-, leik-, framhalds- og háskólum, hvert ár af góðri menntun skili frá sér 9% auknum árstekjum fyrir hvern þann sem nemur þetta góða nám. Þess vegna skiptir miklu máli að menntamálin séu í forgrunni, sem þau hafa því miður ekki verið hér nema fyrir einhvers konar uppþot og vitleysisgang í kerfinu, sem er miður. Við þurfum að einbeita okkur að almennilegum málefnum þar. En, já, það er rauður þráður hjá ríkisstjórninni, einhvers konar skammtímalausnir og skammtímahugsun. Þetta er svona svipað og þegar þér er kalt og þú pissar í skóinn og þá verður þér hlýtt í smástund en svo frýs í skónum. Því miður fyrir íslenska þjóð mun fljótlega frjósa hér í efnahagslífinu.