157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[19:03]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er þakkarvert að hv. þingmaður hugsi málin ekki aðeins til enda, hann leitast líka við að hugsa um heildina. Hv. þingmaður er þingmaður Reykvíkinga en í ræðu sinni ræddi hann líka hagsmuni landsbyggðar. Ég sem fulltrúi landsbyggðarkjördæmis kann honum bestu þakkir fyrir það. Hv. þingmaður hefur kynnt hér til sögunnar hugtakið loftslagskvíða. Ég hef ekki heyrt þetta áður, hugsanlega á hv. þingmaður heiðurinn af því að finna upp þetta orð … (Gripið fram í: Hleðslukvíði. ) Hleðslukvíði, ætlaði ég að segja, frú forseti, sem er miklu nærtækara hugtak heldur en loftslagskvíði. Ég hef forðast hleðslukvíðann með því að aka um á bifreið sem gengur bæði fyrir rafhleðslu og eldsneyti. Ég fæ reyndar stundum eldsneytiskvíða þegar minnkar í tankinum, sérstaklega vegna þess að ég vil yfirleitt ekki setja á bílinn nema ná alla vega 67 lítrum, þetta er 70 lítra tankur, annars finnst mér ég hafa brugðist, ef ég hef ekki nýtt eldsneytisrýmið til fulls. En ef ég væri að ferðast til annars lands, segjum Slóvakíu, þá myndi ég tvímælalaust taka jarðefnaeldsneytisbíl á leigu fremur en að treysta á það að einhvers staðar í fjöllum Slóvakíu finni ég hleðslustöð. Eldsneytisstöðvar eru þrátt fyrir allt mun aðgengilegri. Þess vegna skil ég vel nálgun hv. þingmanns og hugarfar erlendra ferðamanna sem hingað koma og vilja að sjálfsögðu á ferð um Ísland, hið dreifbýla land, geta tekið eldsneyti á bílinn. Ég tek undir þennan skilning hv. þingmanns og þar af leiðandi áhyggjur hans af áhrifum á landsbyggðina.

En spurningin var þessi, frú forseti: Þetta er skýrt með því að við þurfum að borga fyrir vegina, viðhald vega og framkvæmdir. Almenningur er þegar að borga (Forseti hringir.) miklu meira heldur en sett er í vegina. Á stöðugt að leggja ný gjöld (Forseti hringir.) á almenning sem borgar sína skatta með ýmsum hætti og réttlæta það með því (Forseti hringir.) að það þurfi bara að borga aðeins meira til þess að ríkið geti uppfyllt skyldur sínar?