kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir sitt seinna andsvar sem var mjög fínt. Ég held að hv. þingmaður viti hug minn til skattamála; ég tel að skattar, eins og ég nefndi áðan, séu eins og ákveðin mara, pressa eða kyrkislanga á atvinnulífið, kreisti úr því súrefni og veiti því ekki næringu eins og eldur þarf, þannig að því sé svarað. Ég vil líka upplýsa fólk almennt um það, frú forseti, að það er ákveðið kerfi á því erlendis og á Íslandi hvernig bensínstöðvar eru staðsettar. Það er ekki tilviljun hvernig þeim er dritað um vegi í Bandaríkjunum, í Evrópu og hér á Íslandi. Það eru aldrei meira en 50 km, nema menn fari einhverjar mjög fáfarnar slóðir, á milli bensínstöðva sem er akkúrat gula bensínljósið á mælaborðinu. Þannig að þegar menn keyra og sjá gula ljósið þá eiga þeir alltaf að ná í jarðefnaeldsneytisstöð, eða bensínstöð eins og kallað er í daglegu tali.
Staðan varðandi rafhleðslu hér á landi er ekki sú sama, þeir innviðir eru bara ekki til. Vissulega hafa þeir batnað en það er nánast ósatt að segja að það sé bara ekkert mál fyrir erlenda ferðamenn sem ætla að ferðast hundruð kílómetra út á land og að þeir þurfi engar áhyggjur að hafa, þeir geti bara brunað af stað á rafmagnsbíl. Það er þannig að jarðefnaeldsneytisbílarnir skapa ekki þennan hleðslukvíða og þess vegna velja ferðamenn þá bíla.